Sósíalistar og stórkapítalistar ná saman

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. mbl.is/Árni Sæberg

Formaður Framsóknarflokksins sagði á Alþingi í dag, að sósíalistar og stórkapítalista hefðu nú náð saman um tvö verkefni: Að koma skuldum gjaldþrota banka yfir á almenning og koma í veg fyrir almenna skuldaleiðréttingu.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson lét þessi ummæli falla í umræðum um störf þingsins þar sem meðal annars voru til umfjöllunar fréttir um að nýtt samkomulag í Icesave-málinu væri í sjónmáli.

Sagði Sigmundur Davíð, að gamlir vinir úr Icesave-deilunni hefðu nú skotið upp kollinum hér og hvar. Forstjórar, sem voru hvað mest á bandi ríkisstjórnarinnar á sínum tíma létu í sér heyra og lánshæfismatsfyrirtækin væru meira að segja mætt til leiks í gegnum samfylkingarmanninn á Bloomberg. 

„Lánshæfismatsfyrirtækin hafa nákvæmlega engan trúverðugleika  lengur og eru dálítið kostuleg þegar þau mæta á sviðið núna. Á sama tíma og skuldatryggingarálagið, hinn raunverulegi mælikvarði á stöðu ríkisins, hefur batnað, batnað og batnað frá því Icesave-samkomulaginu var hafnað, þá kemur fulltrúi lánshæfismatsfyrirtækis og býðst til að selja aflátsbréf ef Íslendingar samþykkja nýja Icesave-samninginn," sagði Sigmundur Davíð.

Hann sagði að það áhugaverðasta nú væri þó, að tekin hefði verið upp ný aðferð til að koma Icesave-samningnum í gegn.

„Fjármálaráðuneytið reynir að fá Samtök atvinnulífsins og aðra stórkapítalista til að beita sér fyrir samþykkt hins nýja samnings. Þá er komin upp sú sérkennilega staða, að sósíalistarnir hafa náð saman við stórkapítalistana um tvö verkefni sem þeir vilja vinna að samtímis. Annars vegar að koma skuldum gjaldþrota banka yfir á íslenskan almenning og hins vegar að koma í veg fyrir að íslenskur almenningur fái leiðrétt stökkbreytt lán sín í íslensku bönkunum."

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert