Meirihlutinn jákvæður gagnvart áliðnaði
Yfir helmingur landsmanna, eða 54,4%, eru jákvæðir gagnvart íslenskum áliðnaði en fimmtungur landsmanna, eða 22,6%, eru neikvæðir gagnvart slíkum iðnaði. 23,1% eru hlutlausir. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem var gerð fyrir Samtök álframleiðenda á Íslandi (Samál), sem tóku formlega til starfa í dag.
Fram kemur í tilkynningu frá Samál að markmið samtakanna sé að vinna að hagsmunum og framþróun íslensks áliðnaðar og að auka upplýsingagjöf um áliðnaðinn.
Capacent framkvæmdi könnunina sem gerð var gerð dagana 21.-28. október sl. Úrtakið var 1185 manns á öllu landinu en 778 svöruðu, sem er 65,7% svarhlutfall.
„Þessi nýju samtök munu leggja sérstaka áherslu á upplýsingagjöf enda hafa skoðanakannanir sýnt að aðeins 25% landsmanna telja sig þekkja vel til áliðnaðar þrátt fyrir alla þá umfjöllun sem hann hefur fengið. Þá hefur það og sýnt sig að afstaða fólks sem býr í nágrenni við álverin er jákvæðari í garð þeirra. Þetta rímar vel við þá stefnu álfyrirtækjanna að vera góðir grannar. Eftir því sem fólk þekkir betur til iðnaðarins, þeim mun jákvæðara er það. Aukin upplýsingagjöf er því stærsta hagsmunamál áliðnaðarins á Íslandi í dag,“ segir Rannveig Rist, stjórnarformaður Samáls, í fréttatilkynningu.
„Íslenski áliðnaðurinn er í dag í fararbroddi á heimsvísu hvað umhverfismál varðar. Þannig er heildarlosun á hvert framleitt tonn hér á landi, að teknu tilliti til losunar vegna raforkuframleiðslu, aðeins um 20% af losuninni sem verður við framleiðslu málmsins í Evrópu. Mikil framþróun hefur átt sér stað í íslenskum álverum hvað umhverfismálin varðar en frá árinu 1990 hefur losun gróðurhúsalofttegunda á hvert framleitt tonn dregist saman um nær 75%. Á árinu 2009 minnkaði losunin á hvert framleitt tonn um 11% frá árinu á undan,“ segir Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri Samáls, í tilkynningunni.
Þá segir að það komi fram á vefsíðu samtakanna, www.samal.is, ýmsar upplýsingar um hagræn áhrif áliðnaðarins. M.a. að með afleiddum störfum hafi um 4.300 manns framfæri sitt af álframleiðslu, en það samsvari um 2,4% af vinnuaflinu hér á landi.
Þar komi jafnframt fram að útflutningstekjur áliðnaðarins árið 2009 hafi numið 170 milljörðum króna en það samsvari 22% af heildarútflutningstekjum þjóðarinnar. Af þessum 170 milljörðum sitji um 70 milljarðar eftir hér á landi í formi launagreiðslna, skatta, orkukaupa og ýmissar þjónustu sem álfyrirtækin kaupi.
Þá er tekið fram að íslensku álfyrirtækin eigi árlega viðskipti við tæplega 700 íslensk fyrirtæki.
|
|
Spurningar og svör um áliðnaðinn |
|
|
Könnun Capacent |





































