Umferðartafir á Miklubraut

Það var bíll við bíl á Miklubrautinni í morgun.
Það var bíll við bíl á Miklubrautinni í morgun. mbl.is/Ernir

Umferð vestur eftir Miklabraut hefur gengið hægt í morgun. Ástæðuna má rekja til þess að klukkan sjö var lokað fyrir umferð um afrein Miklubrautar að Skeiðarvogi vegna framkvæmda.

Að sögn Vegagerðarinnar verður hjáleið um Grensásveg.

Um hálf níu var enn löng bílaröð sem teygði sig frá Grensásvegi upp Ártúnsbrekku.

Gert er ráð fyrir að opnað verði aftur fyrir umferð á afreinina á laugardag ef það viðrar til malbikunar á föstudag. Annars verður ekki opnað fyrir umferð fyrr en eftir helgi. 

Skv. upplýsingum lögreglu hefur umferðin gengið áfallalaust fyrir sig.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert