Fer að ráðleggingum Hafró
Mokveiði út af Snæfellsnesi mbl.is/Rax
Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur í dag gefið út reglugerðir um loðnuveiðar. Samkvæmt þeim er heimilt að veiða 200 þúsund tonn af loðnu í íslenskri fiskveiðilögsögu á tímabilinu frá 23. nóvember 2010 til og með 30. apríl 2011.Er þetta í samræmi við tillögu Hafrannsóknarstofnunar sem kynnt var í gær.
Í Morgunblaðinu í dag kom fram að áætla megi að útflutningsverðmæti afurða af þeim 200 þúsund tonnum af loðnu sem Hafrannsóknastofnunin leggur til að leyft verði að veiða í vetur geti numið um 17 milljörðum króna.
Heildaraflamark í loðnu byggir á ráðgjöf Hafrannsóknarstofnunar. Stofnunin framkvæmdi haustmælingu á loðnu á tímabilinu frá 24. september til 8. nóvember á rannsóknarskipunum Árna Friðrikssyni og Bjarna Sæmundssyni. Loðnumælingarnar fóru fram fyrr og náðu yfir lengri tíma en á undanförnum árum þegar þær voru gerðar á tímabilinu frá því um miðjan nóvember og fram í desember. Þetta leiddi aftur á móti til þess að unnt var að fara miklu víðar en undanfarin ár þar sem enginn lagnaðarís var til trafala líkt og oft hefur verið í nóvember og desember.
Því telur Hafrannsóknastofnunin að mælingar á stærð stofnsins nú séu að líkum marktækari en mælingar undanfarinna ára.
Ekki líklegt að heimildir verði auknar
Af þessum 200 þúsund tonnum fara um 139 þúsund tonn til íslenskra loðnuveiðiskipa sem hafa aflamark í loðnu en rúmlega 60 þúsund tonn fara til erlendra skipa samkvæmt milliríkjasamningum.
Rétt er að vekja athygli á að niðurstöður haustmælinga Hafrannsóknarstofnunar gefa ekki tilefni til að ætla að veiðiheimildir vegna loðnu verði auknar á tímabilinu,segir í tilkynningu frá ráðuneytinu.
„Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra leggur áherslu á að veiðum og fullvinnslu þessa afla verði hagað með þeim hætti, að sem mestur þjóðhagslegur ábati skapist af þessari auðlind og loðnuafli nýtist sem best til manneldis. Ríkar skyldur hvíla á útgerðum loðnuskipa að koma til móts við væntingar markaðarins um loðnuhrogn og vandaða meðferð hráefnis," segir í tilkynningu.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 18. febrúar 2010, Innlent Leggja til 20 þúsund tonna aukningu
- Fimmtudagur, 30. september 2010, Innlent 400 tonnum af skötusel úthlutað
- Föstudagur, 3. júní 2011, Innlent Álit nefndar í næstu viku
- Fimmtudagur, 7. janúar 2010, Innlent Heimilt að veiða 7 þúsund tonn til viðbótar
- Þriðjudagur, 16. mars 2010, Innlent Áskorun vegna laxeldis í Arnarfirði
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































