Umferðarlagabrotum fækkar á milli ára
Alls voru 1.266 hegningarlagabrot skráð á landinu í október sl. og eru þau svipað mörg og í október í fyrra. Þá voru fíkniefnabrot 147 talsins í október, en 96 í fyrra. Fjöldi umferðarlagabrota voru tæplega 4.500 nú og eru þau fjórðungi færri en í fyrra, að því er fram kemur nýrri afbrotatölfræði ríkislögreglustjóra.
Eru fíkniefnabrotin 53% fleiri en í fyrra. Segir í skýrslu ríkislögreglustjóra að
brotunum hafi fjölgað hlutfallslega mest
milli ára í fjórum umdæmum. Þau hafi verið 10 á Selfossi en eitt í
fyrra. 21 á
Akureyri en 9 í fyrra. 17 á Suðurnesjum en 11 í fyrra og 90 á
höfuðborgarsvæðinu, en hafi verið 70 í fyrra.
Skráð voru um 31 hegningarlagabrot að meðaltali á dag í október á
höfuðborgarsvæðinu, 3 á dag á Suðurnesjum og 2 á dag á Selfossi og
Akureyri. Í öðrum umdæmum var minna en eitt slíkt brot framið daglega að
meðaltali.
Flest umferðarlagabrot voru í október 2009 en fæst í október 2005 og 2008. Hraðakstursbrot voru 3.160 sem jafngildir um 102 slíkum brotum á dag. Alls voru 57% umferðarlagabrota skráð á höfuðborgarsvæðinu, 19% á Selfossi og 9% í Borgarnesi. Einnig kemur fram að brot vegna ölvunar við akstur hafi verið færri.
Flest þjófnaðarbrot og innbrot að degi til
Fram kemur að þjófnaðarbrot og innbrot hafi verið færri en í sama mánuði síðustu tvö ár sem sé jákvæð þróun. Bent er á að flestir þjófnaðir eigi sér stað að degi til (39%) og einnig innbrot (30%). Síðarnefndu brotin dreifist hins vegar jafnar en hin þjófnaðarbrotin yfir sólarhringinn.
Í skýrslunni kemur fram að meira en helmingur líkamsárása eigi sér stað að nóttu til og einnig meirihluti kynferðisbrota, eða 42%.
Eignaspjöll, fíkniefnabrot, áfengislagabrot ,líkamsárásir, akstur gegn rauðu ljósi og nytjastuldur voru hins vegar fleiri í október nú en 2008 og 2009.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 20. nóvember 2009, Innlent Umferðarlagabrotum fjölgar um 68%
- Mánudagur, 17. október 2011, Innlent 55% allra brota eru á höfuðborgarsvæðinu
- Mánudagur, 28. febrúar 2011, Innlent Þjófnaðir og innbrot tæp 50% hegningarlagabrota
- Fimmtudagur, 16. september 2010, Innlent Fíkniefnabrotum hefur fækkað
- Föstudagur, 21. maí 2010, Innlent Hnuplarar frá 8 til 88 ára
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































