Handrit.is hlýtur Hagnýtingarverðlaun HÍ

Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, ásamt verðlaunahöfum og Rögnvaldi Ólafssyni, …
Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, ásamt verðlaunahöfum og Rögnvaldi Ólafssyni, formanni dómnefndar.

Hagnýtingarverðlaun Háskóla Íslands voru afhent nú síðdegis í tólfta sinn. Fyrstu verðlaun hlaut tillaga Sigurgeirs Steingrímssonar vísindamanns á Árnastofnun, Arnars Hrafnkelssonar, forstöðumanns handritadeildar Landsbókasafns, og Matthew Driscolls, forstöðumanns Árnastofnunar í Kaupmannahöfn.

Tillagan kallast: „Handrit.is - Rannsóknargagnagrunnur og samskrá um íslensk og norræn handrit“. Verkefnið er á sviði norrænna fræða og er  nútíma  gagnagrunnur um íslensk og norræn handrit.

Að þessu sinni bárust 13 hugmyndir af ýmsum fræðasviðum Háskóla Íslands.

Nánar á vef Háskóla Íslands.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert