Tók fimm byssur og þrjár rjúpur
Þyrla Landhelgisgæslunnar TF-GNÁ leggur upp í eftirlitsflugið frá Kárastaðaflugvelli við Borgarnes í dag. mbl.is/Theodór Kr. Þórðarson
Lagt var hald á fimm haglabyssur og þrjár rjúpur í eftirlitsferð lögreglunnar í Borgarfirði og Dölum á rjúpnveiðislóðir í almenningi á Bröttubrekku og Holtavörðuheiði í dag. Farið var á TF-GNÁ þyrlu Landhelgisgæslunnar og sextán veiðimenn teknir tali, að sögn lögreglunnar.
Lögreglan óskaði í dag eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslu Íslands eftir að borist höfðu nokkrar ábendingar um rjúpnaveiðimenn innan umdæmisins sem ekki fylgdu reglum sem eru í gildi um rjúpnaveiðar, að sögn Landhelgisgæslunnar.
Lögreglunni höfðu borist tilkynningar um veiðimenn á fjórhjólum og vélsleðum á veiðislóð, en það er ekki leyfilegt. Mennirnir voru farnir þegar lögreglan kom og sáust engir á fyrrnefndum farartækjum í þessari eftirlitsferð, að sögn Theodórs Kr. Þórðarsonar, yfirlögregluþjóns í Borgarnesi.
Sextán veiðimenn voru teknir tali og athugað með veiðikort þeirra og skotvopnaleyfi. Fimm þeirra voru ekki með sín mál í lagi að því leyti, vantaði annað hvort skotvopnaleyfið eða veiðikortið eða hvort tveggja. Einn mun hafa verið með byssu í eigu annars manns en ekki með skriflega lánsheimild fyrir henni.
Ekki voru allir veiðimennirnir sáttir við þessar aðgerðir lögreglunnar og áttu síst von á því að eftirlitið kæmi að ofan úr heiðskýru lofti!
Lagt var hald á þrjár rjúpur hjá einum veiðimanni sem var ekki með sín mál í lagi. Nánar verður athugað með skráningu skotvopnanna hjá lögreglunni.
Þyrla Landhelgisgæslunnar var á leið í fjallaæfingu í dag og var því ákveðið að samnýta verkefni landhelgisgæslu og lögreglunnar, að sögn Landhelgisgæslunnar. Lögreglumaður úr Borgarnesi var tekinn um borð í þyrluna áður en farið var til eftirlits um umdæmið.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Sunnudagur, 15. nóvember 2009, Innlent Árangursríkt eftirlit úr lofti
- Mánudagur, 9. nóvember 2009, Innlent Rjúpnaveiðimenn lögðu á flótta
- Mánudagur, 31. október 2011, Innlent Sáu töluvert mikið af rjúpu
- Laugardagur, 18. september 2010, Innlent Takmörkun veiða skilar ekki árangri
- Þriðjudagur, 3. ágúst 2010, Innlent Ólöglegar netalagnir í sjó
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“





































