Flokksráðið ræðir Evrópumál
Ályktanir sem voru kynntar á flokksráðsfundi Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í gær verða afgreiddar í dag. Búast má við hörðum umræðum um Evrópumál. Fundurinn hófst í Hagaskóla í gær og var fundað fram á kvöld. Stefnt er að því að ljúka afgreiðslu ályktana og slíta fundinum í hádeginu í dag.
Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, ávarpaði fundarmenn í gær þar sem hann sagðist vera bjartsýnn á að sátt næðist um Evrópusambandsaðild.
Ekki taka flokksmenn Vinstri grænna undir þá skoðun að sátt ríki um Evrópumál. Rúmlega sjötíu manns stóðu að ályktun í gærkvöldi um að flokksráðið krefðist þess skilyrðislaust að aðlögunarferlið yrði stöðvað og að hafnar yrðu eiginlegar samningaviðræður.
„Aðlögunarferlið er mjög kostnaðarsamt og við sjáum engan tilgang í því að leggjast í rýnivinnu og setja upp stofnanir með tilheyrandi kostnaði og ferðum til Brussel,“ sagði Ásmundur Einar Daðason, þingmaður og einn flutningsmanna tillögunnar, í samtali við Morgunblaðið.
„Við lögðum þetta til sem sáttatillögu í Evrópumálum, en það hefur verið mikill urgur í flokksmönnum vegna þeirra,“ sagði hann ennfremur og bætti við að tillagan væri ekki einungis lögð fram í þeim tilgangi að sætta ólík sjónarmið innan VG, hún ætti erindi við þjóðina alla.
Steingrímur sagði m.a. í gær að afar erfið glíma væri framundan á næstu vikum og mánuðum. Í fjárlögunum væri verið að fást við sársaukafulla birtingarmynd hrunsins, sem menn gætu ekki skorast undan sem hann sagði að við gætum ekki skorast undan.
„Við erum ekki að gera þetta að gamni okkar og sumar þessarar ákvarðana hafa verið gríðarlega erfiðar að taka. En ef við gerum þetta ekki, sköpum við langtímavandamál,“ sagði Steingrímur og benti á að ríkið greiddi um 200 miljónir á dag í vexti.
Bloggað um fréttina
-
Heimir L Fjeldsted Hvað kostar? -
Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir Ekkert ESB...
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 30. ágúst 2011, Innlent Óskiljanleg ályktun um Líbíu
- Þriðjudagur, 30. mars 2010, Innlent Ákvörðun S&P í samræmi við væntingar
- Föstudagur, 19. nóvember 2010, Innlent Bjartsýnn á að sátt náist
- Laugardagur, 16. janúar 2010, Innlent Málefnahópar fara yfir ályktanir VG
- Laugardagur, 20. nóvember 2010, Innlent Hagsmunum best borgið utan ESB
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































