Blindir ósáttir við eftirlit
Sömu reglur eiga að gilda um kosningu blindra og sjónskertra til stjórnlagaþings utan kjörstaða og á laugardaginn kemur. Ernir Eyjólfsson
Lögmaður Blindrafélagsins er að skoða hvort skilyrði um að eftirlitsmenn kjörstjórna fylgist með kosningu blindra og sjónskertra til stjornlagaþings standist lög. Blindrafélagið mun ákveða á morgun til hvaða ráða það ætlar að grípa en félagið er ósátt við kröfuna um eftirlitsmann í kjörklefanum.
Kristinn Halldór Einarsson, formaður Blindrafélagsins, sagði að félagið hafi verið í samskiptum við dóms- og mannréttindaráðuneytið vegna framkvæmdar kosningarinnar til stjórnlagaþings. Félagsmenn hafa getað stuðst við blindraspjöld í listakosningum til sveitastjórna og Alþingis, en málið vandast þegar skrifa þarf allt að 25 númer í vallínur.
„Við sendum þeim erindi 19. október og bentum á að það þyrfti að huga að því að blindir og sjónskertir gætu kosið á sjálfstæðan máta.Í því sambandi bentum við á samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks varðandi framkvæmd kosninga,“ sagði Kristinn.
Ráðuneytið féllst á að blindir og sjónskertir gætu tekið með sér aðstoðarmann að eigin vali í kjörklefann, „en auk þess er talið nauðsynlegt kjörstjóri eða annar af hálfu kjörstjórnar sé viðstaddur þegar seðillinn er fylltur út,“ segir í svari ráðuneytisins.
„Það er þessi viðbót sem við erum ósátt við. Það er að það skuli vera eftirlitsmaður frá kjörstjórn sem fylgist með því hvernig þeir kjósa sem koma með sinn eigin aðstoðarmann,“ sagði Kristinn.
Hann sagði að sumir blindir og sjónskertir kunni að koma án aðstoðarmanns og þiggja aðstoð frá kjörstjórn við að kjósa. Hins vegar telji Blindrafélagið óþarft að fulltrúi kjörstjórnar horfi yfir öxlina á þeim sem koma með sinn eigin aðstoðarmann og fylgist með hvernig þeir kjósa.
Arnþór Helgason bendir á þetta á bloggi sínu undir fyrirsögninni „Verður Ögmundur kærður fyrir mannréttindabrot?“ Hann segir m.a. að félagsmaður í Blindrafélaginu sem er í framboði til stjórnlagaþings sé í hópi þeirra sem hyggist leggja fram kæru vegna málsins.
Bloggað um fréttina
-
Guðni Karl Harðarson Virðist vera brot á réttindum -
Kristbjörg Þórisdóttir Bætt samfélag hefst hér og nú - aðgerðir takk!
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 25. nóvember 2010, Innlent Blindir geta kosið leynilega
- Mánudagur, 22. nóvember 2010, Innlent Réttur blindra sniðgenginn
- Fimmtudagur, 25. nóvember 2010, Innlent Fulltrúi kjörstjórnar fer ekki með blindum inn í kjörklefann
- Þriðjudagur, 19. október 2010, Innlent Eiga að geta kosið með eðlilegum hætti
- Föstudagur, 26. nóvember 2010, Innlent Eyðublöð fyrir aðstoðarmenn send kjörstjórnum
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































