Þingmenn óska eftir fundi með ráðherrum

Þingmennirnir vilja funda með ráðherrum um almennar leiðréttingar lána.
Þingmennirnir vilja funda með ráðherrum um almennar leiðréttingar lána. mbl.is/Ómar

Þingmenn Framsóknarflokksins og Hreyfingarinnar hafa sent forsætisráðherra bréf og óskað eftir fundi með fimm ráðherra hópnum svokallaða til að ræða almennar leiðréttingar lána og með hvaða hætti hægt sé að framkvæma slíkar leiðréttingar.

Þá er þess óskað að fulltrúum Hagsmunasamtaka heimilanna verði boðið að sitja fundinn.

Bréfið undirrita þingmennirnir Gunnar Bragi Sveinsson, Margrét Tryggvadóttir, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Þór Saari. 

Það var sent Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra sl. fimmtudag. Svar hefur ekki borist

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert