Fréttaskýring: Pyrrhosarsigur flokksforystunnar
Hart var tekist á um tillögur um aðlögunarferli Íslands að ESB á flokksráðsfundi VG um helgina. Tillaga Atla Gíslasonar og sjötíu flokksmanna hlaut ekki brautargengi á fundinum. Þess í stað var tillaga forystunnar samþykkt. mbl.is/Eggert
Jónas Margeir Ingólfsson
jonasmargeir@mbl.is
Flokksráð Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs hélt fund um helgina í Hagaskóla í Reykjavík. Hart var tekist á um málefni aðlögunarferlis Íslands að Evrópusambandinu en tvær slíkar tillögur voru lagðar fram.
Atli Gíslason lagði ásamt sjötíu öðrum flokksmönnum fram tillögu sem gerði ráð fyrir því að aðlögunarferli Íslands yrði hætt og skrúfað yrði fyrir fjárstreymi frá Brussel. Þannig ætti að stöðva „yfirstandandi aðlögunarferli“ en þess í stað ætti að láta reyna á einfaldar samningaviðræður og leggja niðurstöður þeirra fyrir þjóðina.
Leitað að nýjum farvegi
Hópur sem stendur nærri Steingrími J. Sigfússyni, formanni flokksins, lagði fram tillögu þess efnis að ferlinu yrði haldið áfram í óbreyttri mynd en samt sem áður ætti að stöðva aðlögun Íslands og fjárveitingar Evrópusambandsins til þess. Í grófum dráttum fela tillögurnar það sama í sér en stuðningsmenn tillögu Atla telja að ef stjórnvöld ætli sér að stöðva bæði aðlögun og fjárstreymi sé „yfirstandandi aðlögunarferli“ dautt og leita verði að nýjum farvegi. Þannig væri betra að leggja til hvernig haga ætti nýju samningaferli.Síðarnefnda tillagan var samþykkt en tillaga Atla Gíslasonar var felld.
Ásmundur Einar Daðason, þingmaður VG og stuðningsmaður tillögu Atla Gíslasonar, kveður marga ESB-andstæðinga hafa stutt þá tillögu sem samþykkt var vegna þess að orðalag hennar var veikara. Hins vegar verði sú krafa gerð til fulltrúa VG í ríkisstjórn að þeir fylgi tillögunni og stöðvi aðlögunarferlið og fjárstreymið frá Brussel. „Ef menn ætli ekki að stöðva aðlögun og fjárstreymi verður þungt undir fæti á næsta fundi.“
Ásmundur kveður þetta pyrrhosarsigur flokksforystunnar en hugtakið á rætur að rekja til dýrkeypts hernaðarsigurs Pyrrhosar frá Epíros. „Nú verður því fróðlegt að sjá á næstu dögum og vikum hvort menn ætli sér virkilega að stoppa þetta. Ef þetta reynist vera yfirskin og menn hafi þarna keypt sér frið þá er ég bara sammála því sem Atli hefur sagt, að þetta sé pyrrhosarsigur. Ég held að þetta sé sigur fyrir flokksforystuna en ósigur fyrir flokkinn sjálfan og fólkið sem hefur stutt hann. Verði þessari ályktun ekki fylgt eftir af festu þá á ég von á því að flokkurinn þoli ekki fleiri slíka sigra.“





































