Ekki í hankí-pankí með ráðherra
Tryggvi Þór Herbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, sagðist á Alþingi í dag vísa því á bug að hafa verið í einhverju „hankí-pankí" með fjármálaráðherra varðandi bætur til stjórnenda meðferðarheimilisins Árbótar í Aðaldal.
Tryggvi Þór vísaði í frétt Fréttablaðsins í dag þar sem fjallað er um tölvupóst frá Árna Páli Árnasyni, þáverandi félagsmálaráðherra, til nokkurra embættismanna 7. maí. Í póstinum segir: „Hef áhyggjur af því að klára málið með öllum þessum útgjöldum fyrir [Barnaverndarstofu] í andstöðu við forstjóra stofnunarinnar. Af hverju erum við að borga meira en 30 milljónir umfram skyldu? Hvers vegna? Jú - vegna sanngirnissjónarmiða og þrýstings frá kjördæmisþingmönnum."
„Ég frábið mér sem þingmaður Norðausturkjördæmi að vera sakaður um eitthvað hankí-pankí með fjármálaráðherra, jafnvel þótt heimildarmaðurinn sé Árni Páll Árnason," sagði Tryggvi Þór.
Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins, sagði að þingmenn flokksins í Norðausturkjördæmi hefðu ekki komið nálægt Árbótarmálinu svonefnda, þar hefði verið um að ræða þingmenn sem standa nær fjármálaráðherra.
Kristján L. Möller, þingmaður Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmis, sagði að fréttir um samkomulagið við forsvarsmenn Árbótar í gær hefðu komið honum og öðrum þingmönnum Samfylkingarinnar í kjördæminu jafn mikið á óvart og öðrum. Mál Árbótar hefði einu sinni verið rætt á fundi allra þingmanna kjördæmisins en þar hefði aðeins verið lýst áhyggjum af því, að loka ætti meðferðarheimilinu.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 17. maí 2010, Innlent Gríðarleg sóun vegna gjaldeyrishafta
- Föstudagur, 25. nóvember 2011, Innlent Harkalegt að útiloka Huang
- Föstudagur, 3. september 2010, Innlent Óskar eftir fundi vegna nýrra hagtalna
- Þriðjudagur, 8. desember 2009, Innlent Meirihluti samþykkti Icesave
- Föstudagur, 27. nóvember 2009, Innlent Þinginu haldið í gíslingu málþófs
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































