Ekki í anda jafnaðarstefnunnar
Þingmenn ræddu á Alþingi í dag um mál 15 ára fatlaðs drengs, sem fjallað var um í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi. Þar kom fram, að drengurinn, sem er blindur og heyrnarlaus og bundinn við hjólastól, verður sennilega að flytja af heimili sínu á Akureyri vegna þess að Tryggingastofnun og Akureyrarbær hafa hafnað málaleitan foreldra hans um styrki svo hægt sé að breyta húsnæði þeirra.
Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingarinnar, vakti athygli á málinu í umræðum um störf þingsins og sagði, að gríðarlegt álag væri fyrir fjölskyldur að annast fjölfötluð börn. Þau byggju mörg við annars flokks mannréttindi og yrðu að flytja að heiman langt fyrir aldur fram.
„Þessi drengur er aðeins að biðja um að fá að búa áfram á sínu heimili eins og öll önnur börn vilja gera," sagði Sigmundur Ernir. Spurði hann hvort félags- og trygginganefnd þingsins myndi taka þetta mál upp.
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, starfandi formaður nefndarinnar, sagði að Tryggingastofnun greiddi framfærslueyri eða bætti upp fyrir kostnað vegna fötlunar eða sjúkdóms. Stofnunin hefði hins vegar ekkert með húsnæði að gera.
Það væri hins vegar alvarlegt vandamál, að í tryggingakerfinu væri ekki almennilega gert ráð fyrir breytingum, sem gera þyrfti á húsnæði vegna fatlaðra. Ekki sé gert ráð fyrir því í útgjöldum ríkisins til húsnæðismála, að standa straum af kostnaði sem þessum.
Fólki, eins og fjölskyldu viðkomandi drengs, byðust lán á markaðskjörum til að breyta húsnæði sínu en ekki sérstakir styrkir. „Þetta
er náttúrulega ekki í anda jafnaðarstefnunnar og ekki í anda hins góða
samfélags," sagði Sigríður Ingibjörg. Finna yrði leiðir til að
niðurgreiða vexti og bjóða upp á styrki til að koma til móts við þessa
einstaklinga.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 11. ágúst 2011, Innlent Þýðingarmikið mál fyrir fatlað fólk
- Laugardagur, 26. júní 2010, Innlent Skorast ekki undan ábyrgð
- Föstudagur, 25. nóvember 2011, Innlent Óviss um stuðninginn
- Miðvikudagur, 25. maí 2011, Innlent MS - ekki sama og hjólastóll
- Föstudagur, 4. desember 2009, Innlent Stofna félag til að styrkja kvennadeildina
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































