Hvenær kemur lausnin á skuldavanda heimilanna?

Frá Alþingi.
Frá Alþingi.

„Hvenær kemur lausnin á skuldavanda heimilanna?" spurði Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, á Alþingi í dag.

„Tillögurnar eru á leiðinni," sagði Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.

Hún sagði að mjög góður gangur hefði verið í þeirri vinnu, sem forsætisráðherra hefði leitt. Nú væri unnið að því öllum árum að finna þá niðurstöðu, sem þjónaði þeim markmiðum að aðstoða þau heimili, sem eru í mestum vanda, án þess að sigla fjármálakerfinu í strand.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert