Kostir evru ekki eins skýrir
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, segir kosti þess að taka upp evru á Íslandi ekki jafn skýra og fyrir ári. Hvert evruríkið á fætur öðru eigi í vanda, síðast Írland. Forsetinn ræddi stöðu evrunnar og hvernig gengislækkun krónunnar hefur hraðað efnahagsbata Íslands í samtali við Reuters.
Forsetinn sagði blaðamanni Reuters að fyrir rúmu ári hafi umræðan um rökin fyrir Evrópusambandsaðild á Íslandi einkum snúist um að fjármálamarkaðir hefðu þróast með þeim hætti að erfitt væri fyrir litla þjóð að halda úti sjálfstæðum gjaldmiðli.
„En síðan höfum við séð hvert evruríkið á eftir öðru lenda í miklum vandræðum. Nú síðast það sem hefur gerst á Írlandi. Svo kostir þess að hafa annan gjaldmiðil eru orðnir óskýrari,“ sagði forsetinn í lauslegri þýðingu.
Evran engin uppskrift að árangri
Ætla má að ummælin veki athygli enda hefur talsvert verið fjallað um dræman stuðning við aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu á meðal Íslendinga í heimspressunni að undanförnu.
„Evran er ekki skotheld formúla fyrir efnahagsuppgangi eins og Grikkland og Írland og önnur ríki upplifa nú,“ sagði forsetinn sem þakkaði gengislækkun krónunnar þann árangur sem náðst hefði í íslensku efnahagslífi frá hruni.
„Viðsnúningurinn í hagkerfinu hefur orðið fyrr og með öflugri hætti en búist var við fyrir tveimur árum vegna þess að útflutningsgeirinn, sjávarútvegur, landbúnaður og ferðaþjónusta hafa sterkara samkeppnisforskot.“
Aðild að Evrópusambandinu ekki úrslitaatriði
Forsetinn vék einnig að litlum stuðningi við ESB-aðild á Íslandi.
„Skoðanakannanir á síðustu mánuðum hafa sýnt greinilega fram á að andstaðan við Evrópusambandsaðild hefur farið vaxandi. Fólk telur ekki að [ESB-aðild] sé úrlistaatriði. Hvort hún gæti haft ávinning í för með sér er annað mál.“
Þá sagði forsetinn að niðurstaðan í samningaviðræðum Íslands og ESB í sjávarútvegsmálum myndi ráða úrslitum um afstöðuna til aðildar á Íslandi.
Bloggað um fréttina
-
Jenný Stefanía Jensdóttir Betra að vera lítill gullfiskur í stórri tjörn ........ -
Helgi Rúnar Jónsson Þvílíkt bull í þessum manni!!!
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 30. mars 2010, Innlent Telja líklegt að Icesave-samningar náist
- Föstudagur, 15. apríl 2011, Innlent S&P mun ekki taka afstöðu til þess hvort rangt hafi verið að hafna Icesave-lögunum
- Mánudagur, 1. febrúar 2010, Innlent Ísland enn á athugunarlista
- Mánudagur, 3. maí 2010, Innlent Kristín nýr formaður Rithöfundasambandsins
- Fimmtudagur, 25. nóvember 2010, Innlent Evran enn þá góður kostur
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































