Útgjöld lækka um 5,4 milljarða

Fjármálaráðuneytið. stækka

Fjármálaráðuneytið. mbl.is

Meirihluti fjárlaganefndar hefur sent frá sér nefndarálit um frumvarp til fjáraukalaga fyrir árið 2010. Lagðar eru til tillögur sem lækka útgjöld ríkisins um 5,4 milljarða en meirihlutinn gerir jafnframt tillögur um 6,9 milljarða í auknar tekjur á rekstrargrunni.

Nefndin hefur haft frumvarpið til athugunar og í því skyni leitað skýringa hjá fjármálaráðuneyti og fagráðuneytum varðandi beiðnir um auknar fjárheimildir. Segist meirihlutinn einnig hafa farið yfir þau erindi sem hafa borist nefndinni. Mun nefndin á milli 2. og 3. umræðu um frumvarpið kalla eftir frekari upplýsingum um einstaka málaflokka.

Í áliti meirihlutans segir m.a.: „Ríkissjóður varð fyrir gífurlegu tjóni í kjölfar falls bankanna haustið 2008. Þyngstu höggin á ríkissjóð af þessum sökum voru fall Seðlabanka Íslands upp á 170 milljarða kr., endurfjármögnun bankanna upp á 200 milljarða kr., skuldasöfnun vegna hallareksturs upp á 225 milljarða kr. auk lána til að byggja upp gjaldeyrisvarasjóð upp á 120 milljarða kr. Þessu til viðbótar varð ríkissjóður fyrir miklum tekjubresti auk þess sem vaxtakostnaður margfaldaðist vegna aukinna skulda. Því var ljóst að bregðast þurfti við þessum mikla vanda með afgerandi hætti, með aukinni tekjuöflun, samdrætti í útgjöldum og ekki síst með auknu aðhaldi í ríkisfjármálum. Segja má að aðhald og eftirfylgni með fjármálum ríkisins hafi verið í miklum lamasessi til margra ára. Þó svo að tekjur ríkissjóðs hafi jafnan verið meiri en áætlanir og fjárlög hvers árs gerðu ráð fyrir voru útgjöldin sömuleiðis langt umfram settan ramma á ári hverju.“

Æðsta stjórn ríkisins fái 43 milljónir

Meðal tillagna meirihlutans er að lagt til er að fjárheimild æðstu stjórnar ríkisins verði aukin um 43 milljónir króna, þar af 4,4 milljónir vegna rannsóknarnefndar Alþingis, 12 milljónir vegna kaupa á sérfræðiþjónustu vegna stjórnlagaþings og 11 milljónir vegna starfa saksóknara Alþingis og málareksturs fyrir landsdómi.

Lagt er til að fjárheimild menntamálaráðuneytisins hækki um 24 milljónir en heimild utanríkisráðuneytisins lækki um 12 milljónir. Heimild dóms- og mannréttindaráðuneytisins verði einnig lækkuð, eða um 35 milljónir, en sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið fái heimildir auknar um 19 milljónir króna.

Þá leggur meirihlutinn til að heimildir félags- og tryggingamálaráðuneytisins verði lækkaðar um 2,8 milljarða, þar af um 1,2 milljarða vegna minni atvinnuleysisbóta. Ekki gerir meirihluti fjárlaganefndar miklar breytingar á framlögum til heilbrigðisráðuneytisins á þessu ári, eða viðbót um 1 milljón króna til Forvarnasjóðs.

Fjármálaráðuneytið á að fá sín auknar heimildir upp á 1,1 milljarð króna. Munar þar mestu um auknar ríkisábyrgðir, um 1 milljarð, vegna afborgana og vaxta af lánum sem voru með ábyrgð í lánasöfnum föllnu bankanna þriggja. Meðal annarra tillagna er snúa að fjármálaráðuneytinu er að 250 milljónir króna verði vettar til Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar.

Ranghermt var í fyrirsögn með þessari frétt á mbl.is fyrr í kvöld að útgjöld yrðu aukin um 5,4 milljarða og er beðist velvirðingar á því.

 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

Í gær, 18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
Í gær, 18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
Í gær, 16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
Í gær, 17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

Í gær, 17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
Í gær, 15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Bílskúrssala.
Velkomin á bóka-, plötu- og flóamarkað að Melgerði 16, 108 Reykjavík. Opið alla...
Furminator kambarnir eru til í öllum stærðum
Ný sending af Furminator kömbunum vinsælu 4 stærðir í boði fyrir öll gæludýr sma...
NÝJAR VÖRUR Í HVERRI VIKU
FLOTTUR FATNAÐUR Á FRÁBÆRU VERÐI - ERTU BÚIN AÐ KÍKJA? http://www.123budin.is/...
Fertugur er í dag Haraldur Guðni Eiðsson
Haraldur verður að heiman á afmælisdaginn. Hann afþakkar blóm og gjafir en biður...
 
Starfsleyfisauglýsing
Tilkynningar
Mynd af auglýsingu ...
12836 fellahverfi - útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Þjónustufulltrúi.
Skrifstofustörf
Þjónustufulltrúi Fyr...