Álver á Bakka enn inni í myndinni

Frá Alcoa Fjarðaáli. Bergur telur enn líkur á að álver rísi á Bakka. stækka

Frá Alcoa Fjarðaáli. Bergur telur enn líkur á að álver rísi á Bakka. Þorvaldur Örn Kristmundsson

„Við erum afskaplega glöð með að þessu sé loksins lokið og nú er kominn tími til þess að gera eitthvað í málum. Við munum bíða og aðstoða þá aðila sem vilja byggja upp eftir fremsta megni,“ segir Bergur Elías Ágústsson, sveitarstjóri Norðurþings, um niðurstöðu Skipulagsstofnunar. Álver sé enn í myndinni.

Eins og komið hefur fram hefur Skipulagsstofnun sent frá sér niðurstöðu vegna mats á umhverfisáhrifum en stofnunin telur að heildaráhrif Kröfluvirkjunar II, Þeistareykjavirkjunar, álvers á Bakka við Húsavík og háspennulína frá Kröflu og Þeistareykjum að álveri á Bakka muni óhjákvæmilega hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif í skilningi laga um mat á umhverfisáhrifum.

Bergur Elías telur enn líkur á að álver rísi á Bakka við Húsavík.

„Við erum afskaplega ánægð með að þessu mati skuli vera lokið eftir tvö ár og fjóra mánuði og almennt má segja um niðurstöðuna í álitinu að það er ekkert sem kemur á óvart að einu eða neinu leyti. Þetta er allt þekkt og þegar menn skoða hin einstöku álit eru þarna ábendingar sem verður að sjálfsögðu reynt að koma til móts við.“

Haldi áfram að bora

- Hvernig sérðu framkvæmdaáætlunina fyrir þér?

„Ég hefði vonað að nú fljótlega liggi fyrir einhver ákvörðun um að halda áfram að bora því að nú fá menn heimild til þess, þ.e. til þess að afla meiri orku á háhitasvæðinu. Fyrsta verkefnið sem þarf að vinna er að halda rannsóknum og borunum áfram á næsta ári. Það mun í sjálfu sér skapa störf og vonandi kemur hitt í framhaldinu,“ segir Bergur Elías og útskýrir hvernig boranir við Þeistareyki hafi verið settar á ís á meðan á vinnu Skipulagsstofnunar stóð.

- Hvernig bregstu við þeim ummælum Árna Finnssonar, formanns Náttúruverndarsamtaka Íslands, að með þessari niðurstöðu sé álver á Bakka út af borðinu?

„Ég veit ekki hvað Árni Finnsson á við. Það er ekkert sem bendir til að svo sé. Ef hann heldur því fram held ég að hann ætti að kynna sér þau gögn sem þarna liggja fyrir mun betur.“

Ekkert nýtt í niðurstöðunni

- Þannig að þú telur að það geti engu að síður orðið af álveri á Bakka? 

„Já. Það er ekkert nýtt þarna. Ekki neitt.“

- Telurðu að álverið geti orðið 360.000 tonn?

„Það er alveg ljóst og hefur alltaf legið fyrir frá upphafi að þegar farið var í matið var þar gert ráð fyrir allt að 346.000 tonnum. Það hefur einnig legið ljóst fyrir að ef menn færu í svo stóra framkvæmd þyrfti hún að gerast yfir töluvert langan tíma og hefur í raun og veru þær takmarkanir að ekki er hægt að svara þessari spurningu fyrr en að einhverjum árum liðnum. Þannig að menn munu fara mjög, mjög varlega. Það þýðir ekki að menn geti ekki byggt minna og hugsanlega þá stækkað síðar sé orka fyrir hendi.“

- Hvernig ætlar sveitarfélagið að bregðast við?

„Við bregðumst við með þeim hætti að við fögnum því að þessum áfanga sé náð. Það sem er í raun og veru eftir er að sveitarfélögin í Þingeyjarsýslu þurfa að veita framkvæmdaleyfi og Umhverfisstofnun starfsleyfi og að sjálfsögðu þarf að semja við orkukaupandann um nýtingu orkunnar. Það er eitt í þessu sem er mikilvægt að halda til haga en það er að við svona stórar framkvæmdir verður alltaf ákveðið rask. Það gera sér allir grein fyrir því. Við höfum haft það að leiðarljósi að reyna að takmarka umhverfisáhrif eins mikið og kostur er. Þegar öllu er á botninn hvolft er staðreyndin sú að nú þurfum við að fara að skapa störf.“ 

Bergur Elías Ágústsson, sveitarstjóri í Norðurþingi

Bergur Elías Ágústsson, sveitarstjóri í Norðurþingi mbl.is

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

Í gær, 18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
Í gær, 18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
Í gær, 16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
Í gær, 17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

Í gær, 17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
Í gær, 15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
CAVALIER HVOLPAR
Cavalier hvolpar til sölu. Erum með yndislega cavalier hvolpa til sölu. Kíktu á ...
NÝJAR VÖRUR Í HVERRI VIKU
FLOTTUR BARNAFATNAÐUR, BARNAVÖRUR, SNYRTIVÖRUR OG MARGT FLEIRA. FRÁBÆR VERÐ - E...
Kæliklefar. Frystiklefar. Lausfrystar
Kæli- og frystiklefar í öllum stærðum. Skammur afhendingartími. Hægt er að fá k...
RENAULT MEGANE SPORT TOURER
Renault Megane Sport Tourer Nýskr. 3/2004, ekinn 122 þ. km, bens...
 
Aðalfundur félags háskólakvenna

Félag háskólakvenna og kvenstúdenta Aðal...
Sýslumaðurinn á selfosi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Starfsleyfisauglýsing
Tilkynningar
Mynd af auglýsingu ...
Lausar kennarastöður við leik- og grunns
Grunn-/framhaldsskóla
Lausar kennarastöður við leik...