Óbreytt afstaða til NATO
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra (t.h.) á leiðtogafundi NATO í Portúgal, ásamt Angelu Merkel (t.v.), kanslara Þýskalands, og Juliu Gillard (í miðið), forsætisráðherra Ástralíu.
„Að því er varðar Ísland er óbreytt viðhorf til NATO,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra í svari við fyrirspurn Gunnars Braga Sveinssonar, þingmanns Framsóknarflokksins, fyrir stundu. Gunnar Bragi sagði óvissu hafa verið uppi um afstöðu stjórnarinnar til bandalagsins.
Ný grunnstefna Atlantshafsbandalagsins (NATO) hefur verið til umræðu, ekki síst eftir að samþykkt var á fundi bandalagsins í Lissabon um síðustu helgi að ráðast í gerð eldflaugaskjaldar í ríkjum bandalagsins.
Gunnar Bragi Sveinsson, þingmaður Framsóknarflokksins, spurði Jóhönnu hvort afstaðan til NATO innan stjórnarinnar væri óbreytt, ekki síst í ljósi leiðtogafundar NATO sem Jóhanna og Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra hefðu sótt í Lissabon um síðustu helgi.
„Er íslenska ríkisstjórnin og þar með íslenska ríkið aðili að grunnstefnu NATO?“ spurði Gunnar Bragi en í þessu samhengi má rifja upp að Ögmundur Jónasson dómsmálaráðherra aflar nú fylgis við það innan VG að efnt verði til þjóðaratkvæðagreiðslu um að Ísland segi sig úr NATO.
Eldflaugaáætlunin hefur breyst
Stefán Pálsson, formaður Samtaka hernaðarandstæðinga, gagnrýnir aðkomu íslenskra stjórnvalda að samkomulaginu og segir það hafa legið fyrir frá því Ingibjörg Sólrún Gísladóttir gegndi embætti utanríkisráðherra hvað felist í eldflaugaáætluninni.
Jóhanna sagði hins vegar að áætlunin um skjöldin hefði breyst.
„Það er töluverður munur á því að sem var samþykkt þar [í Portúgal] og því sem var uppi á borðum fyrir nokkrum árum.“
Jóhanna segir mannvirkjasjóð NATO standa straum af kostnaðinum. „Það er gert ráð fyrir að eldflaugakerfið verði byggt upp á 10 árum og að kostnaðurinn verði greiddur upp á 20 árum.“
Bloggað um fréttina
-
Óðinn Þórisson Þjóðaratkvæðagreislur nató&esb -
Björn Birgisson NATO rakettur
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 3. október 2011, Innlent Framlag Íslands mikilvægt
- Laugardagur, 20. nóvember 2010, Innlent Jóhanna ánægð með aukið samráð
- Sunnudagur, 21. nóvember 2010, Innlent Vinstri stjórnin styður NATO
- Fimmtudagur, 25. nóvember 2010, Innlent Segir Jóhönnu misskilja stöðu NATO
- Fimmtudagur, 14. október 2010, Innlent Össur á fundi NATO
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“





































