Segir Jóhönnu misskilja stöðu NATO
Stefán Pálsson, formaður Samtaka hernaðarandstæðinga, telur Jóhönnu Sigurðardóttur hafa misskilið þróun eldflaugaáætlunar Atlantshafsbandalagsins, NATO, þegar hún ræddi þróun bandalagsins og samstarfsins við Ísland á Alþingi. Áætlunin hafi ekki breyst eins og forsætisráðherra hafi gefið í skyn.
Eins og komið hefur fram á fréttavef Morgunblaðsins telur Stefán að sú stefna sem hafi verið samþykkt varðandi eldflaugaskjöldinn á fundi NATO í Lissabon um síðustu helgi hafi verið framhald af fundi bandalagsins í Búkarest fyrir tveimur árum. Íslensk stjórnvöld hafi því vitað um hvað málið snýst.
Hrannar tekur þátt í spunanum
„Þetta er greinilega mjög jákvæður spuni sem bæði utanríkisráðherra og forsætisráðherra hafa viljað setja á þennan fund og mér skilst að aðstoðarmaður utanríkisráðherra [Hrannar B. Arnarsson] sé hamingjusamur á Fésbókarsíðu sinni líka.
Hrannar leggur mikla áherslu á hvað NATO sé orðið „and-kjarnorkuþenkjandi“ bandalag og að hér sé um allt annars konar verkefni að ræða varðandi þennan kjarnorkuskjöld heldur en það sem rætt var um árið 2008. Það sem maður les út úr umfjöllun um fundinn annars staðar er þetta er einhvers konar einkatúlkun sem maður verður ekki var við annars staðar.
Mér sýnist sem að þeir sem fjalla um eldflaugamál vegna þessa fundar líti á hann sem framhald af því sem ákveðið var á fundinum í Búkarest. Á þeim fundi var Rússum boðið að vera með. Ég hefði nú talið að afstaða íslenskra stjórnmálamanna til þessa skjaldar ætti að mótast af því hvað mönnum finnst um að ráðist sé í svona vígbúnaðarkapphlaup og fé mokað í vopnakaup um leið og alþjóðlegir vopnasáttmálar eru brotnir, heldur en að afstaðan byggist aðeins á því hvort Rússar eru sáttir eða ósáttir.“
Greining Jóhönnu röng
- En hvað með þau ummæli Jóhönnu að eldflaugaáætlunin hafi breyst frá dögum fundarins í Búkarest?
„Ég sé ekki þá breytingu. Það er misskilningur að það sé nýmæli núna að það sé verið að taka til alls svæðisins [þ.e. yfirráðasvæðið bandalagsríkjanna]. Í gagnrýni okkar í samtökunum [hernaðarandstæðinga] árið 2008 bentum við einmitt á að skjöldurinn tæki til alls svæðisins og áhyggjur af því að það kallaði á mannvirkjagerð í norðinu. Þannig að það er ekkert nýtt.
Síðan fyrri utanríkisráðherra, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, þrætti fyrir að Ísland hefði skrifað undir þennan skjöld og stutt hann sé ég í sjálfu sér ekki að nein breyting hafi orðið þar á. Ég hafna því sem einhverjum spuna [íslenskra stjórnvalda] að NATO sé að snúa baki við kjarnorkustefnu. Þvert á móti er áréttað í hinnu nýju grunnstefnu NATO að kjarnavopn verði eftir sem áður hornsteinn í stefnu bandalagsins. Mér finnst þessi túlkun blönduð óskhyggju.“







































