Þurfa að greiða nærri milljarðs skuld
Hæstiréttur hefur dæmt að breski kaupsýslumaðurinn Kevin Stanford og fjárfestingarsjóðurinn Kcaj LLP þurfi að greiða VBS fjárfestingarbanka 5 milljóna punda skuld jafnvirði 906 milljóna króna. Um er að ræða lán, sem enska félagið Ghost Ltd tók árið 2007 en Stanford og Kcaj gengust í ábyrgð fyrir.
Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður sýknað Stanford og Kcaj af kröfu bankans.
VBS taldi að Stanford og Kcaj hefðu undirgengist sjálfskuldarábyrgð á láninu til Ghost, sem síðan varð gjaldþrota. En þegar VBS krafði Stanford og Kcaj um greiðslu lánsins neituðu þeir.
Héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu að Stanford og fulltrúar Kcaj hefðu með undirritun sinni á lánsskjölin samþykkt skilmála lánsins en ekki að tekist á hendur sjálfskuldarábyrgð.
Þessu er Hæstiréttur ekki sammála og segir, að þegar litið sé til aðdragandans að gerð lánssamningsins og ótvíræðs orðalags hans yrði að telja að Kevin Stanford og Kcaj hefðu undirgengist sjálfskuldarábyrgð á skilvísum greiðslum lánsins.
Þá segir meðal annars í dómi Hæstaréttar að þótt lántaki hefði einnig sett greiðslur nytjaleyfisgjalda sem tryggingu fyrir skilvísum greiðslum lánssamningsins hefði það ekki áhrif á greiðsluskyldu Stanfords og Kcaj, sem sjálfskuldarábyrgðaraðila, gagnvart VBS, sem kröfuhafa, nema um það hefði sérstaklega verið samið, en slíkan fyrirvara væri ekki að finna í lánssamningnum. Var krafa VBS á hendur Kevins Stanford og Kcaj því tekin til greina.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 21. janúar 2011, Innlent Greiði Arion banka 6,4 milljarða
- Fimmtudagur, 15. desember 2011, Innlent Greiði Arion banka 6,4 milljarða
- Fimmtudagur, 3. mars 2011, Innlent Dæmdir til að greiða 30 milljónir
- Mánudagur, 20. desember 2010, Innlent Nábítar, böðlar & illir andar unnu sigur
- Laugardagur, 30. október 2010, Innlent Byggði vörnina á forsendubresti
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































