Nýtt dýpkunarskip til landsins

Herjólfur í Landeyjahöfn
Herjólfur í Landeyjahöfn Rax / Ragnar Axelsson

Nú hefur veðurblíðan leikið við þá sem eru að vinna að dýpkun Landeyjahafnar.  Hefur dýpkunin gengið einstaklega vel í þeirri blíðu sem þar er.  Búið er að fjarlægja yfir 30.000 m³ úr hafnamynninu og rennunni fyrir utan það. 

Siglingastofnun er að semja við Íslenska gámafélagið um að fá nýtt dýpkunarskip til landsins, Skandia, en það á að geta dýpkað í allt að tveggja metra ölduhæð.  Skandia er í slipp í Danmörku þar sem fer fram reglubundin skoðun á botninum og síðan verður skipið málað.  Að slipptöku lokinni verður Skandia siglt til landsins.  Væntanlega verður skipið komið til Eyja upp úr miðjum desember og byrjar þá að dýpka í Landeyjahöfn.

 Í frétt frá Siglingamálastofnun segir að þrátt fyrir að Skandia geti unnið í tveggja metra ölduhæð mun Landeyjahöfn lokast oft í vetur, vegna þess ójafnvægis sem er á ströndinni út af gosinu í vor.   „Í þessu samhengi má ekki gleymast að þegar lagt var af stað í þetta verkefni var ávallt gert ráð fyrir að þegar mjög öflugt hlaup kæmi í Markarfljót myndi sandflutningur aukast og höfnin lokast.

Hins vegar eru jákvæð teikn um að það sé að draga verulega úr sandburði.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert