Þarf ekki að greiða virðisaukaskatt
Varnarmálastofnun þarf ekki að greiða virðisaukaskatt af orkureikningum stofnunarinnar að því er fram kemur í dómi Héraðsdóms Reykjaness í morgun. Ágreiningur var um hvort stofnunin ætti að greiða virðisaukaskatt af reikningum frá Orkubúi Vestfjarða vegna ratsjárstöðvar á Bolafjalli.
Orkubú Vestfjarða þarf að greiða hálfa milljón króna í málskostnað, að meðtöldum virðisaukaskatti.
Varnarmálastofnun keypti orku af Orkubúi Vestfjarða vegna starfsemi ratsjárstöðvar á Bolafjalli ofan Bolungarvíkur. Ágreiningur var um hvort greiða ætti virðisaukaskatt af reikningunum vegna tímabilsins ágúst 2008 til ágúst 2009 en Varnarmálastofnun greiddi alla reikninga frá Orkubúi Vestfjarða á þessu tímabili án virðisaukaskatts.
Dómurinn segir, að ný varnarmálalög hafi tekið gildi í lok maí 2008 en þá tók Varnarmálastofnun formlega við þeim varnar- og öryggistengdu verkefnum, sem fram að því höfðu verið í höndum Bandaríkjahers.
Í lögunum segir: „Öryggis- og varnarsvæði, ásamt mannvirkjum íslenska ríkisins, Atlantshafsbandalagsins eða Bandaríkjanna þar, og starfsemi þeim tengd, skulu undanþegin öllum opinberum gjöldum, þ.m.t. vegna kaupa á vöru og þjónustu til viðhalds og rekstrar. Þá eru mannvirkin undanþegin skyldutryggingu fasteigna.“
Í greinargerð með lagafrumvarpinu sagði að eðli málsins samkvæmt falli virðisaukaskattur undir hugtakið opinber gjöld í ákvæðinu. Segir héraðsdómur því óumdeilt að stofnunin hafi ekki þurft að greiða virðisaukaskatt.
Samkvæmt breytingu á varnarmálalögum, sem samþykkt var í sumar, verður Varnarmálastofnun lögð niður um áramótin og utanríkisráðuneytið tekur við verkefnum hennar.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 25. janúar 2010, Innlent Skilar 120 milljóna afgangi
- Miðvikudagur, 8. desember 2010, Innlent Óvissa á Suðurnesjum
- Mánudagur, 14. nóvember 2011, Innlent Landsvirkjun gert að greiða Ístaki
- Föstudagur, 14. maí 2010, Innlent Skýrleika vantar í frumvarp
- Þriðjudagur, 7. desember 2010, Innlent Vildu ekki láta loka Varnarmálastofnun
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































