Góðar aðstæður í Bláfjöllum

Búast má við að margir renni sér í Bláfjöllum í …
Búast má við að margir renni sér í Bláfjöllum í dag. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Í dag er opið í Bláfjöllum kl. 10-17. Núna kl. 8:20 er blankalogn og heiðskýrt og -7°. Spáð er mjög góðu veðri í dag.

Kl. 11-15 er boðið uppá fría skíðakennslu fyrir byrjendur við Bláfjallaskála. Veitingasala og skíðaleiga eru á staðnum og miðasala fer fram á N1 Ártúnsbrekku ásamt Bláfjallaskála.

Starfsfólk í Bláfjöllum minnir á vetrarkortin sem eru á tilboðsverði til 5. janúar 2011. Í dag er 13 dagur í opnun þennan veturinn og enn er bara nóvember.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert