Jóhanna búin að kjósa

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra. mbl.is/Ómar

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra kaus í Hagaskóla í dag. Hún gætti að jöfnu kynjahlutfalli í sinni kosningunni og sagði mikið úrval af góðu fólki í framboði. 

Þetta kemur fram á vef skrifstofu stjórnlagaþings. Jóhanna sagði kosninguna stórmerkilega tilraun. Þingmenn hafi hingað til ekki verið færir um að klára endurskoðun stjórnarskrárinnar og nú fái almenningur tækifæri til þess. Það kom henni á óvart hversu fáir voru á kjörstað á miðjum degi.

Jóhanna segir mjög mikilvægt að þátttaka verði í kosningunum verði góð og hvatti almenning að koma á kjörstað og taka þátt í mótun stjórnarskrárinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert