Kveikja á Oslóarjólatrénu í dag
Ljós verða kveikt á Oslóar-jólatrénu á Austurvelli í dag og hefst athöfnin kl. 15:30. Tæp sextíu ár eru síðan Norðmenn færðu Íslendingum í fyrsta sinn grenitré að gjöf til að skreyta Reykjavík. Tréð í ár var höggvið við hátíðlega athöfn í Aurtjørn í Nordmarka að viðstöddum sendiherra Íslands og borgarstjóra Oslóar.
Lúðrasveit Reykjavíkur hefur dagskrána kl. 15:30 með því að leika falleg jólalög undir stjórn Lárusar H. Grímssonar. Kl. 16:00 tekur Dómkórinn við og syngur nokkur lög undir stjórn Kára Þormar. Því næst mun Dag Wernø Holter sendiherra Noregs á Íslandi og Aud Kvalbein varaborgarstjóri Oslóarborgar afhenda Reykvíkingum tréð að gjöf. Jón Gnarr borgarstjóri tekur við trénu og hin 11 ára norsk-íslenska Embla Gabríela Børgesdóttir Wigum fær þann heiður að tendra ljósin á trénu góða.
Reykjavíkurborg hefur frá upphafi stutt jólaóróaverkefni Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra, en óróarnir prýða Óslóartréð og eru eina skrautið á trénu auk jólaljósanna. Í ár er viðfangsefnið Jólakötturinn.Hildigunnur Gunnarsdóttir og Snæfríð Þorsteins, hönnuðir og skáldið Þórarinn Eldjárn leggja Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra lið með túlkun sinni á Jólakettinum - þær stöllur fást við stálið en Þórarinn við málið. Þórarinn frumflytur kvæðið um Jólaköttinn á Aðventuhátíðinni. Allur ágóði af sölu Jólakattarins rennur til starfs í þágu fatlaðra barna og ungmenna.
Þegar ljósin hafa verið kveikt á jólatrénu og Austurvöllur er kominn í jólabúning birtast góðir gestir á sviðinu. Forsetinn og prinsessan úr söngleiknum Ballið á Bessastöðum koma og syngja titillag söngleiksins en það er nú þegar orðið mörgum krökkum kunnugt.
Jólasveinarnir Gluggagægir, Stúfur og Giljagaur hafa stolist til byggða og láta sjá sig á Austurvelli. Þeir ætla að kenna stórum sem smáum hvernig best er að halda á sér hita og svo þykir þeim auðvitað ekkert eins skemmtilegt og að syngja jólalög með kátum krökkum!
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Sunnudagur, 28. nóvember 2010, Innlent Ljós tendruð á jólatrénu
- Föstudagur, 26. nóvember 2010, Innlent Kveikt á Óslóartrénu á sunnudag
- Sunnudagur, 29. nóvember 2009, Innlent Tendrað á ljósum Óslóartrésins
- Sunnudagur, 27. nóvember 2011, Innlent Kveikt á jólatré á Austurvelli
- Sunnudagur, 27. nóvember 2011, Innlent Kveikt á Óslóarjólatrénu í dag
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































