Lægstu laun yfir 200 þúsund

Kjaraviðræður á vinnumarkaði eru að mjakast af stað.
Kjaraviðræður á vinnumarkaði eru að mjakast af stað. mbl.is/Sverrir Vilhelmsson

Ekki verður greint frá kröfugerð Starfsgreinasambandsins, sem gengið var frá í dag vegna komandi kjaraviðræðna, fyrr en kröfurnar hafa verið kynntar Samtökum atvinnulífsins. Skv. heimildum mbl.is ætlar SGS að krefjast umtalsverðrar hækkunar lágmarkslauna. Lægsti taxti í dag er rúmar 157 þús. kr en krafist verður að lægstu laun hækki talsvert umfram 200 þúsund kr.

Flestir kjarasamningar á vinnumarkaði renna út á morgun.

Starfsgreinasambandið hefur umboð til að ganga til samninga við viðsemjendur á almenna vinnumarkaðinum frá öllum aðildarfélögum sambandsins að Flóafélögunum á höfuðborgarsvæðinu frátöldum, sem semja sér.

Framundan eru flóknar kjaraviðræður því auk endurnýjunar kjarasamninga á almenna vinnumarkaðinum þarf að ganga til samninga við ríkið og sveitarfélög vegna þúsunda starfsmanna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert