Svínaflensa í svínabúi

Svínaflensa hefur greinst í svínabúi á Melum í Borgarfirði, að því er kom fram í fréttum Útvarpsins. Haft var eftir dýralækni, að lítil hætta væri á ferðum. Þá hefðu ekki greinst sjúkdómseinkenni í svínum á búinu en það er í einangrun. Sex önnur svínabú í eigu sama aðila eru í bráðabirgðaeinangrun á meðan verið er að rannsaka hvort sjúkdómurinn hefur borist þangað.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert