Talningu lýkur ekki í dag

Kosið var til stjórnlagaþings á laugardag.
Kosið var til stjórnlagaþings á laugardag. mbl.is/Golli

Landskjörstjórn segir nú ljóst, að talningu atkvæða, sem greidd voru í kosningu til stjórnlagaþings á laugardag, lýkur ekki í dag.  Fara þarf aftur yfir öll vafaatkvæði og ganga úr skugga um að meðferð þeirra hafi verið rétt.

Landskjörstjórn kl 9. í gærmorgun til að telja atkvæðin. Um hádegi í dag var lokið við að skanna öll atkvæði og fara yfir fyrstu athuganir á vafaatkvæðum með fulltrúum landskjörstjórnar en fara þarf yfir þau atkvæði aftur. 

Segir kjörstjórnin, að vegna þess hversu hátt hlutfall atkvæða hafi reynst þurfa frekari athugunar við hafi þessi hluti talningarinnar dregist nokkuð. Fulltrúar landskjörstjórnar vinni áfram að þessu verkefni ásamt starfsmönnum Skyggnis og hins breska undirverktaka DRS. 

Landkjörstjórn mun á morgun birta tilkynningu um hvenær þess er að vænta að talningu ljúki og úrslit verða birt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert