155 milljarða gjaldeyristekjur
mbl.is
Á árinu 2009 voru gjaldeyristekjur af erlendum ferðamönnum 155 milljarðar króna að teknu tilliti til umsvifa íslenskra ferða- og flugþjónustufyrirtækja vegna starfsemi utan Íslands.
Þar af var ferðaneysla erlendra ferðamanna hér á landi 112 milljarðar króna en 43 milljarðar króna eru tekjur vegna ferðamanna utan Íslands, að því er kemur fram í nýjum Hagtíðindum Hagstofunnar. Á árinu 2009 komu 494 þúsund ferðamenn til landsins og um 69 þúsund dagsferðamenn með skemmtiferðaskipum.
Samkeppnisstaða landsins styrktist
Á árinu 2009 hækkuðu meðalútgjöld á ferðamann úr ríflega 186 þúsund krónum í 227 þúsund krónur. Meðalgengi krónunnar veiktist um rúmlega 34% milli 2008 og 2009 sem að öðru jöfnu hefur styrkt samkeppnisstöðu landsins sem ferðamannalands á árinu 2009, að sögn Hagstofunnar.
Ferðamenn frá hinum Norðurlöndunum eru fjölmennastir erlendra gesta. Alls komu 123 þúsund ferðamenn frá hinum Norðurlöndunum á árinu 2009. Af einstökum markaðssvæðum hefur þýski markaðurinn verið mikilvægastur mældur í fjölda gistinátta en á árinu 2008 voru gistinætur Þjóðverja 383 þúsund alls. Mesta fjölgun í gistinóttum var meðal Þjóðverja á árinu 2009 en þeim fjölgaði um rúmlega 14%.
Breskir ferðamenn hafa verið fjölmennastir gesta frá árinu 2002 en þeim fækkaði mikið á árinu 2009, úr tæplega 70.500 í tæplega 61.800.
4,6% af vergri landsframleiðslu
Hlutur ferðaþjónustu í vergri landsframleiðslu var 4,6% á árinu 2008. Heildarumsvif fyrirtækja í ferðaþjónustu á árinu 2008 námu ríflega 209 milljörðum króna eða sem svarar um 14% af vergri landsframleiðslu, og hefur þá verið áætlað fyrir umsvifum íslenskra ferða- og flugþjónustufyrirtækja vegna starfsemi utan Íslands.
Heildarferðaneysla innanlands á árinu 2008 var rúmlega 171 milljarður króna eða sem svarar rúmlega 11,5% af vergri landsframleiðslu. Ferðaneysla innanlands skiptist þannig að kaup erlendra ferðamanna voru 93,5 milljarðar, ferðaneysla heimilanna um 67,5 milljarðar og kaup fyrirtækja og opinberra aðila 9,5 milljarðar króna.
Áætlað er, að á árinu 2008 hafi ríflega 9200 manns starfað við ferðaþjónustu eða um 5,1% af störfum alls. Um 55% af umsvifum innlendrar ferðaþjónustu á árinu 2008 má rekja til erlendra
ferðamanna. Á árinu 2003 var þetta hlutfall 53% þannig að vægi þeirra í innanlandsferðaþjónustu hefur aukist lítið eitt.
Bloggað um fréttina
-
Stefán Helgi Kristinsson Þessu vilja álsinnar rústa! -
Ómar Ragnarsson Gróin vantrú.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 15. desember 2011, Innlent Umsvifin 230 milljarðar
- Miðvikudagur, 13. apríl 2011, Innlent Von á allt að 600 þúsund ferðamönnum
- Fimmtudagur, 14. apríl 2011, Innlent Útgjöld til heilbrigðismála lækka á ný
- Fimmtudagur, 18. febrúar 2010, Innlent Ferðamenn skila 155 milljörðum
- Föstudagur, 14. janúar 2011, Innlent Fjórðungur af landsframleiðslu til félagsverndar
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































