Hefði viljað hækka útsvar meira
Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi Vinstri grænna, gagnrýndi á borgarstjórnarfundi í dag að meirihlutinn í borgarstjórn hafi ákveðið að fullnýta ekki útsvarið en hækka þess í stað gjaldskrár.
Meirihlutinn í borgarstjórn hefur ákveðið að hækka útsvarið úr 13,03% í 13,20%. Hámarksútvar er 13,28%.
Sagði Sóley, að ákveðið hefði verið að skilja eftir 0,08% ónýtt í útsvari sem annars myndi skila tæpum 230 milljónum í borgarstjoð. Í frumvarpi til fjárhagsáætlunar fyrir næsta ár sé hins vegar gert ráð fyrir gífurlegum gjaldskrárhækkunum, þar á meðal hækki gjaldskrár fyrir þjónustu við börn um 5-35%.
„Þessi staðreynd, að hér stendur til að skilja eftir 0,08% ónýtt útsvar en auka jaðarskatta svo um munar, gerir það að verkum að við Vinstri græn teljum grunnhugmyndafræðina óásættanlega. Við gerum okkur grein fyrir að borgarsjóður stendur ekki og fellur með þessum 230 milljónum en hægt væri að komast hjá stórum hluta flatra gjaldskrárhækkana ef þær væru innheimtar," sagði Sóley.
Hún bætti við, að borgarbúar eigi heimtingu á vandaðri fjárhagsáætlun, þar sem staðinn sé vörður um þá hópa sem verst standa á tímum sem þessum. „Besti flokkurinn og Samfylkingin hafa ekki kjark til að leggja hana fram."
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 14. desember 2010, Innlent Betra að hækka útsvarið meira
- Þriðjudagur, 14. desember 2010, Innlent Gjaldskrár tekjutengdar?
- Þriðjudagur, 14. desember 2010, Innlent Skattahækkanir gangi til baka
- Þriðjudagur, 2. mars 2010, Innlent Gagnrýna þriggja ára áætlun
- Miðvikudagur, 10. ágúst 2011, Innlent Fádæma vanvirðing
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































