Íslandsklukkunni hringt 10 sinnum
Viðar Guðbjörn Jóhannsson, til vinstri, sem sigraði í smásagnasamkeppni 5. bekkinga á Akureyri hringdi Íslandsklukkunni ásamt vini sínum, Hermanni Elí Hafsteinssyni. mbl.is/Skapti Hallgrímsson
Fullveldishátíð var í dag í Háskólanum á Akureyri eins og venjan er 1. desember. Því er nú fagnað að áratugur er liðinn frá því útilistaverkið Íslandsklukkan eftir Kristin E. Hrafnsson var vígt og fært Akureyringum að gjöf frá Akureyrarbæ og einnig voru veitt verðlaun í smásagnakeppni meðal barna í 5. bekk grunnskóla bæjarins.
Dagskráin hófst á i hátíðarsal HA, á málstofu sem bar yfirskriftina Íslandsklukkan, framtíðin og sjálfstæðið. Þrjú erindi voru flutt þar; Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra, flutti erindið Framtíð íslenskra háskóla, Njörður P. Njarðvík prófessor emeritus nefndi sitt erindi Mín klukka, klukkan þín, kallar oss heim til sín og Geir Kristinn Aðalsteinsson forseti bæjarstjórnar Akureyrar flutti erindið Akureyri í framtíðinni.
Á leið til hins betra
Smásagnakeppnin var haldin í samstarfi Háskólans á Akureyri og Akureyrarbæjar við grunnskóla Akureyrar. Þema keppninnar var Framtíðarsýn - Akureyri 2020 og sigurvegara keppninnar hlotnaðist sá heiður að hringja Íslandsklukkunni í dag. Fyrsta sætið hlaut Viðar Guðbjörn Jóhannsson, Glerárskóla með söguna Á leið til hins betra. Í öðru sæti varð Sigurlaug Birta Helgadóttir, Brekkuskóla, með söguna Framtíðarsýn 2020 - Enika og þriðja sætið hlaut Ari Orrason Brekkuskóla með söguna Framtíðarsýn 2020 – Klukkumálið. Alls bárust 78 sögur í keppnina.
Að lokinni málstofu var safnast saman við Íslandsklukkuna þar sem Stefán B. Sigurðsson rektor flutti ávarp og Viðar Guðbjörn, sigurvegari smásagnakeppninnar, hringdi Íslandsklukkunni 10 sinnum með aðstoð Jóhönnu Guðrúnar Magnúsdóttur formanns félags stúdenta við HA. Stúdentar við HA báru logandi kyndla við athöfnina.
Að því loknu var öllum boðið upp á kakó, kaffi og smákökur í hátíðarsal HA auk þess sem þar fór fram sýning á smásögunum sem bárust í keppnina. Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri ávarpaði hátíðina og afhenti síðan, ásamt Stefáni B. Sigurðssyni rektor, viðurkenningar börnunum sem lentu í þremur efstu sætum smásagnakeppninnar.
Barnakór Akureyrarkirkju söng nokkur lög undir stjórn Sigrúnar Mögnu Þórsteinsdóttur. Viðar Guðbjörn Jóhannsson las síðan upp vinningssögu sína og Björn Þorláksson rithöfundur og bæjarlistamaður ræddi við gesti og hvatti ungu kynslóðina til dáða.






































