Níu húsleitir vegna ólöglegs niðurhals

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu framkvæmdi í dag níu húsleitir, sjö á Akureyri og í nágrenni og tvær á höfuðborgarsvæðinu vegna í þágu rannsóknar á stórfelldu ólöglegu niðurhali. Tíu einstaklingar á aldrinum 15-20 ára eru grunaðir um aðild að málinu, öllum hefur verið sleppt.

Lagt var hald á töluvert magn af tölvum og tölvubúnaði auk þess sem marijúana, um 80 grömm, fannst í einu húsanna. Rannsókn málsins hefur staðið yfir um nokkurt skeið en upphaf þess má rekja til kæru sem Samtök myndrétthafa lögðu fram og sneri að ólöglegu niðurhali efnis af netinu og dreifingu þess, þ.e. ólögleg dreifing á höfundarréttavörðu efni.

Við aðgerðirnar naut lögreglan á höfuðborgarsvæðinu aðstoðar lögreglumanna frá embætti ríkislögreglustjóra og lögreglunnar á Akureyri. Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu en lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun greina frekar frá rannsókninni þegar aðstæður leyfa.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert