Tilnefningar til bókmenntaverðlaunanna kynntar
Tilnefningar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna voru kynntar nú síðdegis. Tilnefndar eru fimm verk í flokki fagurbókmennta, fimm verk í flokki fræðirita og einnig eru tilnefndar fimm bækur til þýðingarverðlauna.
Í flokki fagurbókmennta eru eftirfarandi verk tilnefnd:
Bergsveinn Birgisson - Svar við bréfi Helgu, Bjartur
Gerður Kristný - Blóðhófnir, Mál og menning
Sigurður Guðmundsson - Dýrin í Saigon, Mál og menning
Þórunn Valdimarsdóttir - Mörg eru ljónsins eyru , JPV útgáfa
Bragi Ólafsson - Handritið að kvikmynd, Mál og menning
Í flokki fræðirita eru þessi verk tilnefnd:
Sögustaðir, Í fótspor W.G. Collingwood - Einar Falur Ingólfsson, Crymogea/Þjóðminjasafnið
Sveppabókin - Helgi Hallgrímsson, Skrudda
Sigrún Pálsdóttir - Þóra biskups, JPV útgáfa
Guðni Th. Jóhannesson - Gunnar Thoroddsen, JPV útgáfa
Margrét Guðmundsdóttir - Saga hjúkrunar á Íslandi á 20. öldinni, Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
Til þýðingarverðlauna eru tilnefndir:
Atli Magnússon fyrir Silas Marner eftir George Eliot, Bókafélagið Uglan
Erlingur E. Halldórsson fyrir Guðdómlega gleðileikinn eftir Dante Alighieri, Mál og menning
Njörður P. Njarðvík fyrir Vetrarbraut eftir Kjell Espmark, Uppheimar
Óskar Árni Óskarsson fyrir Kaffihús tregans eftir Carson McCullers, Bjartur
Þórarinn Eldjárn fyrir Lé konung eftir William Shakespeare, Vaka Helgafell.
Íslensku bókmenntaverðlaununum var komið á fót árið 1989 í tilefni af 100 ára afmæli Félags íslenskra bókaútgefenda sem stofnað var í Reykjavík í janúar 1889. Fyrsta árið var verðlaununum ekki skipt í flokka en tilnefndar alls 10 bækur. Fyrsti verðlaunahafinn var ljóðskáldið Stefán Hörður Grímsson sem hlaut verðlaunin fyrir bókina Yfir heiðan morgun. Verðlaunaféð var ein milljón króna.
Árið eftir var tilhögun verðlaunanna breytt þannig að tilnefndar bækur skiptust í tvo flokka, flokk skáldverka og flokk fræðibóka/bóka almenns efnis og hefur verið svo síðan. Þýðingarverðlaunin voru veitt í fyrsta skipti á síðasta ári í tengslum við bókmenntaverðlaunin en til þeirra var stofnað árið 2005.
Forseti Íslands afhendir verðlaunin á Bessastöðum. Allir sem gefa út bækur á Íslandi geta lagt fram bækur til verðlaunanna, hvort sem þeir eru í Félagi bókaútgefenda eða ekki, og greiða hóflegt gjald. Verðlaunaupphæðin er 750.000 krónur fyrir hvorn verðlaunahafa.





































