Bökunarvörur ódýrastar í Bónus
Bónus var oftast með lægsta verðið og Samkaup Úrval oftast með hæsta verðið í nýrri verðkönnun sem verðlagseftirlit ASÍ gerði í lágvöruverðsverslunum og stórmörkuðum víða um land, miðvikudaginn 1. desember. Kannað var verð á 56 algengum vörum til baksturs.
Verðið yfirleitt hæst í Samkaupum Úrvali
Bónus var oftast með lægsta verðið í 37 tilvikum en í nær helmingi tilfella var um eða undir 2 kr. verðmunur á Bónus og Krónunni. Samkaup Úrval var með hæsta verðið í 27 tilvikum en Nóatún var næst oftast með hæsta verðið í 20 tilvikum. Allar vörurnar í könnuninni voru til í Hagkaupum en næstflestar vörurnar voru til í Fjarðarkaupum.
„Mikill verðmunur reyndist vera á bökunarvörum. Algengast er að fjórðungs til helmings verðmunur sé á milli verslana. Sem dæmi má nefna að ódýrasta kílóverðið á hveiti sem kostaði 79 kr./kg. í Bónus, en var dýrast á 134 kr./kg. í Hagkaupum, verðmunurinn er tæp 70%.
Verðmunur á sykri var einnig mikill, ódýrasti fáanlegi sykurinn kostaði 185 kr./kg. í Bónus en var dýrastur á 243 kr./kg. í Nóatúni og Samkaupum Úrval, verðmunurinn er 31%.
Ódýrustu rúsínurnar kostuðu 476 kr./kg. í Nettó, en dýrastar voru þær á 698 kr./kg. í Hagkaupum, verðmunurinn er 47%. Odense núggat 100 gr. var ódýrast á 298 kr.st. í Bónus en dýrast á 339 kr.st. Nóatúni og Samkaupum Úrval, verðmunurinn er 14%. Ódýrasta fáanlega kakóið kostaði 1.036 kr./kg. í Krónunni, en dýrast var það á 1.300 kr./kg. í Samkaupum Úrval, verðmunurinn er 26%," segir á vef ASÍ.
Kostur neitaði að vera með
Verslunin Kostur í Kópavogi neitaði þátttöku í könnuninni, samkvæmt frétt á vef ASÍ en Kostur reyndist oftast með hæsta verðið í síðustu verkönnun ASÍ.
Könnunin var gerð á sama tíma í eftirtöldum verslunum: Bónus Kringlunni, Krónunni Reyðafirði, Nettó Akureyri, Fjarðarkaupum Hafnarfirði, Samkaupum Úrval Akureyri, Hagkaup Kringlunni og Nóatúni í Nóatúni.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 16. desember 2011, Innlent Mikill verðmunur á jólamatnum
- Miðvikudagur, 22. desember 2010, Innlent Allt að 122% verðmunur á hamborgarhryggnum
- Fimmtudagur, 19. nóvember 2009, Innlent Mikill verðmunur á bökunarvöru
- Miðvikudagur, 16. mars 2011, Innlent Bónus oftast með lægsta verðið
- Föstudagur, 15. apríl 2011, Innlent Páskaegg ódýrust í Bónus
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































