Kröfu Svenn Dam hafnað

Svenn Dam

Svenn Dam

Kröfu Svenn Dam, fyrrverandi stjórnarformanns Nyhedsavisen, sem var í eigu 365 Media Scandinavia, í þrotabú Íslenskrar afþreyingar var hafnað í Hérðasdómi Reykjavíkur í dag. Hljóðaði krafan upp á tæpar 65 milljónir króna.

Í dómi héraðsdóms kemur fram að með hluthafasamningi sem dagsettur var 2. apríl 2006 milli Dagsbrúnar hf. annars vegar og Dam hins vegar keypti Dam hlutafé í dótturfélagi Dagsbrúnar hf., 365 Media Scandinavia A/S í Danmörku en Dam var framkvæmdastjóri þess síðarnefnda. 

Kemur fram í hluthafasamningnum að eigi síðar en 90 dögum eftir undirritun hans skyldi Dam kaupa 75.000 hluti í 365 Media Scandinavia A/S af Dagsbrún hf. og var kaupverð hlutabréfanna 75.000 danskar krónur.  Af hálfu Dagsbrúnar hf. undirritaði Gunnar Smári Egilsson, framkvæmdastjóri Dagsbrúnar hf., hluthafasamninginn.

 Samkvæmt gögnum málsins var Dagsbrún hf. skipt upp í tvö félög hinn 17. nóvember 2006, annars vegar Teymi hf. og hins vegar Íslenska afþreyingu hf.

Samkvæmt hluthafasamningi  var svokallað valréttarákvæði þar sem Dam hafði rétt til að selja Dagsbrún hf. hlutabréfin í 365 Media Scandinavia A/S og skyldi Dagsbrún kaupa hlutabréfin af Dam.

 Með bréfi 17. júní 2009 var Íslenskri afþreyingu hf. sent bréf af hálfu Dam þar sem tilkynnt var að öllum kröfum samkvæmt hluthafasamningnum yrði framfylgt.  Má skilja bréf þetta sem kröfu um innlausn bréfanna á genginu 45 á hlut samtals að fjárhæð 3.375.000 DKK (75.000 x 45).  Samhljóða bréf var sent Teymi hf.

Með úrskurði uppkveðnum 2. júlí 2009 var bú Íslenskrar afþreyingar hf. tekið til gjaldþrotaskipta.  Frestdagur við skiptin var 30. júní 2009 og lauk kröfulýsingarfresti 15. september 2009.

Dam krafði Teymi  einnig um greiðslu kröfu þeirrar sem hér er fjallað um en það félag fékk heimild til að leita nauðasamninga og voru þeir staðfestir 23. júní 2009.  Var krafa Dam viðurkennd af hálfu Teymis  og í samræmi við nauðasamn­inga félagsins fékk sóknaraðili 20% af kröfum sínum í formi hlutafjár í Teymi.  Í samræmi við það lækkaði Dam kröfu sína.

Samkvæmt gögnum málsins var bú 365 Media Scandinavia A/S í Danmörku tekið til gjaldþrotaskipta 10. október 2008 og lauk skiptameðferð á búinu 4. desember 2009 sem eignalausu.

Gunnar Smári hafði heimild stjórnar til að semja við Dam

Þrotabú Íslenskrar afþreyingar byggði vörn sína á því að  Gunnari Smára Egilssyni, þá­ver­andi framkvæmdastjóra Dagsbrúnar hf., hafi ekki verið heimilt að gera umrædd­an hlut­hafasamning þar sem valréttarákvæði hans hafi haft í för með sér verulegar og íþyngjandi skuldbindingar fyrir félagið og hefði stjórn félagsins þurft að samþykkja slík­ar skuldbindingar.  

Hins vegar verði ekki fram hjá því litið að formaður stjórnar Dagsbrúnar hf., á þeim tíma sem umrætt hlut­hafa­­samkomulag var undirritað, Þórdís J. Sigurðardóttir, lýsti því yfir skriflega og sem vitni fyrir dóminum að fram­kvæmda­stjórinn Gunnar Smári Egilsson, hafi haft fullt umboð stjórnar til að gera umrædd­an samning og hafi hann verið gerður með fullri vitund stjórnar Dagsbrúnar hf. sem hafi þekkt efni samningsins og samþykkt það. 

Hefur þessari fullyrðingu ekki verið hnekkt og þykir því ljóst að fram­kvæmda­stjórinn hafi haft sérstaka heimild stjórnar Dags­brúnar hf. til að gera umdeild­an hlut­hafa­samning.  Þykir engu breyta þar um þótt bókanir á stjórnarfundum félagsins beri ekki með sér að umræddur samningur hafi verið samþykktur af stjórninni en fram kom hjá vitninu Þórdísi að málefni þetta hafi verið margrætt á fundum stjórnarinnar og skort­ur á bókun um það hafi verið hand­vömm.  Samkvæmt þessu verður að telja að samn­ingurinn hafi verið gerður með samþykki stjórnar Dagsbrúnar hf. og sé því skuld­bindandi gagnvart félaginu og þar með þrotabúinu.

Dagsbrún fékk greiðlsuna frá Dm Þrotabúið byggir einnig á því að samningurinn hafi fallið  niður þar sem Dam hafi komið of seint fram með söluósk sína eða eftir að 90 dagar voru liðnir frá gerð samningsins.  Óumdeilt sé að hann keypti 75.000 hluti og greiddi fyrir þá 31. ágúst 2006 og þá voru liðnir fleiri en 90 dagar frá samningnum. 

Ekki verður annað ráðið af gögnum málsins en að Dagsbrún hf. hafi fengið greiðslu þessa og verður því að líta svo á að með því að taka við greiðslunni hafi þeir samþykkt kaupin og verður því ekki fallist á það með þrotabúinu að samningurinn hafi fallið niður af þessum sökum.

Þrotabúið byggði vörn sína enn fremur á því að fyrsti mögulegi innlausnardagur hafi verið 2. júlí 2009, sama dag og bú Íslenskrar afþreyingar hf. var tekið til gjaldþrotaskipta og eftir frestdag sem var 30. júní 2009.  Samkvæmt lögum um gjaldþrotaskipti falla allar kröfur á hendur þrotabúi sjálfkrafa í gjalddaga við uppkvaðningu úrskurðar um töku bús til gjaldþrotaskipta án tillits til þess sem samið kann að hafa verið um áður.

Hlutabréfin voru verðlaus og því forsendur samningsins brostnar

Í dómi héraðsdóms kemur fram að eins og greinir í hluthafasamkomulaginu skyldi Dam eiga rétt á að selja Dagsbrún hlutabréfin í 365 Media Scandinavia A/S á tilgreindu gengi.  Með því að bú þess síðarnefnda hafði verið tekið til gjaldþrotaskipta 10. október 2008, en Dam var  kunnugt um það enda hafði hann lýst kröfu í það þrotabú, var ljóst að hluta­bréf þau sem hann átti rétt á að selja voru verðlaus, enda kom á daginn að félagið var eignalaust. 

Með því að hlutabréf þau sem forveri þrotabúsins hafði skuldbundið sig til að kaupa af Dam voru verðlaus voru forsendur samningsins brostnar. Því var kröfu Dam hafnað þrátt fyrir að Teymi hafi viðurkennt sams konar kröfu.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

Í gær, 18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
Í gær, 18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
Í gær, 16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
Í gær, 17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

Í gær, 17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
Í gær, 15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Hvítur dvergschnauzer.
Eigum 2 yndislega rakka ólofaða úr spennandi goti undan innfluttum margföldum me...
Upphengi fyrir reiðhjól á rennibraut
Til sölu upphengi fyrir reiðhjól á rennibraut. rennibraut 3 metra með 10 krókum...
Stórar kjarrivaxnar útsýnislóðir
í skjólgóðri hlíð mót suðri í Hvalfirði, 55 km frá Rvík. Frábært útsýni. Heitt v...
Honda CR-V 2008 Til Sölu
Til sölu Honda Cr-v skráð 10.1.2008 Ekin 90.xxx þ km. Með öllum aukabúnaði nem...
 
Bifreiðauppboð
Uppboð
DT-195 DT-767 EB-064 EF-921 EK-095 ...
Ný útboð
Tilboð - útboð
ÚTBOÐ Reykjavíkurborg Innkaupaskri...
Kennari
Grunn-/framhaldsskóla
Svalbarðsskóli í ...
Starfsmaður í mötuneyti
Önnur störf
Starfsmaður í mötuneyti Morgunblaðið ...