Ríkið leiðrétti ofríki Bónuss
Jón Gerald Sullenberger, framkvæmdastjóri Kosts, segir erfitt að sjá aðra leið en þá að ríkið grípi inn í og leiðrétti stöðu framleiðenda og kaupmanna undir ofríki Bónuss. Bónus beiti markaðsráðandi stöðu sinni til þess að kúga framleiðendur og samkeppnisaðila.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Jóni, fyrir hönd starfsmanna Kosts, vegna verðkannana ASÍ. Forsvarsmenn verslunarinnar telja hana ekki hafa notið sannmælis í könnunum hingað til. Þar til vinnulag við gerð kannana hafi verið endurskoðað sjái Kostur ekki ástæðu til þess að taka þátt í þeim.
Þær vörur sem valdar eru til að bera saman henti ekki „nýbreytni sem Kostur hefur komið með í vöruúrvali.“
Jón segir vandann þó ekki einskorðast við „gallaðar verðkannanir.“ Samkeppnisstaða á matvörumarkaði sé skökk, og þar sé markaðsráðandi stöðu Bónuss um að kenna. „[Bónus] beitir henni óspar til að kúga bæði framleiðendur og til að boða öðrum kaupmönnum út af markaðnum. Sem dæmi má nefna að innkaupsverðið á 1 lítra af nýmjólk sem Kostur greiðir Mjólkursamsölunni er 101 kr. með virðisaukaskatti, en verðið á sömu vöru hjá Bónus er 98 kr.“
„Það sér hver maður að við þetta verður ekki búið til lengdar, nema að Íslendingar vilji búa við einokunarverslun til framtíðar,“ segir í yfirlýsingunni. „Stjórnvöld verða að grípa til aðgerða og tryggja að nýir aðilar geti dafnað við hlið Bónuss. Neytendur verða að hafa raunhæft val. Það er engum auðvelt sem starfar í viðskiptum að mæla með því að ríkið beiti handafli og brjóti upp fyrirtæki. En ef Bónus breytir ekki starfsaðferðum sínum og heldur áfram misbeita markaðsráðandi stöðu sinni gegn hagsmunum neytenda þá er erfitt að sjá að það sé nokkur önnur leið en að ríkið grípi inn í og leiðrétti þá óheilbrigðu samkeppnisstöðu sem framleiðendur og kaupmenn búa við undir ofríki Bónuss.“
Bloggað um fréttina
-
Heimir L Fjeldsted Bæði hreðja- og kverkatak -
Jón Ármann Steinsson Á að kúga smásölubransann til að selja matvörur yfir kostnaðarverði?
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 19. febrúar 2010, Innlent Úrskurður um sekt Haga stendur
- Fimmtudagur, 18. nóvember 2010, Innlent Sektargreiðsla Haga staðfest
- Laugardagur, 14. nóvember 2009, Innlent Opnun Kosts seinkar
- Fimmtudagur, 12. nóvember 2009, Innlent „Neytendur okkar yfirmenn“
- Fimmtudagur, 18. nóvember 2010, Innlent Dómur um Haga mikilvægur
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































