Segir aðgerðirnar sanngjarnar

Frá blaðamannafundi ríkisstjórnarinnar, lífeyrissjóðanna og annarra sem koma að gerð samkomulagsins um skuldavanda heimilanna stækka

Frá blaðamannafundi ríkisstjórnarinnar, lífeyrissjóðanna og annarra sem koma að gerð samkomulagsins um skuldavanda heimilanna mbl.is/Kristinn

Bæði Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, og Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, segist telja að þau úrræði, sem nú hafa verið kynnt vegna skuldavanda heimilanna, séu sanngjörn.

Jóhanna sagði, að fyrst og fremst væri horft til þeirra, sem séu í mjög miklum vanda og beint sé sérstökum aðgerðum að þeim hópi. Síðan væru aðgerðir í þágu þeirra, sem eru með yfirveðsettar eignir þar væru settar ákveðnar girðingar vegna þeirra, sem hefðu skuldsett sig langt umfram greiðslugetu og eiga ef til vill fleiri en eina eign.

Þá væri mikilvæg hin almenna aðgerð, vaxtaniðurgreiðsla sem nái til um 60 þúsund heimila af þeim 72 þúsund heimilum, sem eru með íbúðaskuldir. „Það eru tímabundnar almennar aðgerðir sem eru innan þeirra marka sem við getum gert til að tryggja áframhaldandi stöðugleika og setja ekki ríkissjóð og fjármálakerfið á höfuðið," sagði Jóhanna. 

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, sagði að um væri að ræða blandaða leið þar sem annars vegar væri tekið á vanda þeirra sem væru verst settir, sem væri að stærstum hluta fólk sem keypti íbúðir rétt fyrir hrun. Með vaxtaniðurgreiðslunni væru byrðarnar síðan léttar með almennari hætti. 

„Ég held að það sé verið að ganga eins langt og menn telja sig geta gert," sagði Steingrímur. 

Fram kemur í viljayfirlýsingunni, sem skrifað var undir í dag, að aðilar séu sammála um að með þessum aðgerðum sé með viðhlítandi hætti og eins og fært sé, brugðist við skuldavanda heimilanna. Mikilvægt sé að úrvinnslu verði nú hraðað og ekki séu efni til að vænta frekari aðgerða.

„Ég held að við höfum staðið frammi fyrir því allt of lengi, að fólk er að bíða eftir því að það komi fleiri aðgerðir til viðbótar við þær 50 aðgerðir sem hafa verið settar fram á undanförnu tæpu tveimur árum og ég held að allir séu sammála um að þetta sé lokaátakið í því efni," sagði Jóhanna. 

Á hinn bóginn eru sértækar aðgerðir sem taka sérstaklega á vanda þeirra sem eru yfirveðsettir, m.a. vegna þess að fall hefur orðið á fasteignamarkaði. Blanda,

Er þetta lokapunkturinn. Í lífinu eru engir lokapunkar. Erum að reyuna að ná niður fjármagnskostnað. Mjög mikilvægt að þeir sem eru í viðskiptum við banka og lánakerifð líitð svo á að búið sé að setja strik undir þessa vinnu og menn eiga a
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

Í gær, 18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
Í gær, 18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
Í gær, 16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
Í gær, 17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

Í gær, 17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
Í gær, 15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Toyota Corolla1,4 VVTi,8/2003
Til sölu Toyota Corolla 1,4 VVTi, 8/2003. Ek. 100 þús., bensín, nýskoðaður, ný ...
SANDBLÁSTURFILMUR
Sandblásturfilmur í öllum stærðum og gerðum fyrir heimili og fyrirtæki. Sendið f...
Hjólhýsi TEK 585TKM árgerð 2004
Verð 2.500.000 Hjólhýsið er á loftpúðum, þannig að það er mun léttara og mýkra ...
Benz húsbill til sölu.
Til sölu húsbíll Mercedes Bens 307D 2,4 Disel Upplýs. S- 8959906...
 
Aðalfundur alliance

Aðalfundur 2012 Aðalfundur Alliance...
Samkoma
Félagsstarf
Sunnudagur27. maí - hv...
Útboð nr. 20091
Tilboð - útboð
Útboð nr. 20091 Glerskipti...
Framkvæmdastjóri
Stjórnunarstörf
Norræni verkefnaútflutningssjóðurinn (No...