Fréttaskýring: Tímabundin lausn en ráðnir ótímabundið

Hæstiréttur. stækka

Hæstiréttur. mbl.is/GSH

Morgunblaðið Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is

Þeir hæstaréttar- og héraðsdómarar sem ráðnir verða í upphafi næsta árs til þess að létta á fyrirsjáanlegu álagi á dómskerfið vegna fjölda mála sem tengjast efnahagshruninu verða ráðnir á sömu forsendum og almennt gildir um ráðningu dómara hér á landi.

Nýlega mælti dómsmálaráðherra fyrir frumvarpi um tímabundna fjölgun dómara en samkvæmt lögum um dómstóla eru dómarar skipaðir ótímabundið í embætti sín. Þá fara nýir dómarar í gegnum sama ráðingarferli og almennt gengur og gerist.

Í frumvarpinu er lagt til að hæstaréttardómurum, sem nú eru níu, fjölgi um þrjá í tólf frá áramótum og héraðdómurum um fimm í 48 frá 1. mars á næsta ári. Héraðsdómurum var áður fjölgað tímabundið á síðasta ári úr 38 í 43. Þá er kveðið á um að ekki skuli skipað í embætti héraðs- eða hæstaréttardómara, sem losna eftir 1. janúar 2013, fyrr en þess gerist þörf til að ná þeirri tölu sem kveðið er á um í núgildandi lögum.

Dómarar ráðnir ótímabundið

Bryndís Helgdóttir, settur skrifstofustjóri dóms- og mannréttindaráðuneytisins, segir að þó að til standi að fjölgun dómara sé tímabundin þá sé ekki hægt að ráða þá tímabundið, til dæmis til fimm ára. „Þeir eru ráðnir eins og venjulega. Eins og ákvæðið er orðað þá verður ekki ráðið í embætti sem losna eftir 1. janúar 2013. Þannig að þegar menn komast á aldur og hætta verður ekki ráðið í staðinn fyrir þá þangað til tala dómara í héraði verður aftur 38 og fjöldi hæstaréttardómara níu,“ segir hún.

Að sögn Bryndísar hafa bæði Hæstiréttur og dómstólaráð kallað eftir fjölgun dómara sem sé nauðsynleg til að bregðast við fjölgun viðamikilla mála. Þó að minni málum hafi fækkað fyrir dómstólum þá hafi þungum málum fjölgað mjög.

Aukið álag á næstu árum

Eftirmál efnahagshrunsins á Íslandi hafa það í för með sér að álag á dómskerfi landsins mun aukast umtalsvert á næstu mánuðum og árum á meðan greitt er úr fjölda gjaldþrotaskiptamála auk viðamikilla mála frá sérstökum saksóknara. Í athugasemdum við frumvarpið er sagt að búist sé við að síðarnefndu málin muni dreifast yfir tímabil fram til ársins 2013 til 2014 og væntanlega koma til afgreiðslu í Hæstarétti í lok ársins 2011 eða í byrjun árs 2012.

Ágreiningsmálum vegna gjaldþrotaskipta hefur fjölgað gríðarlega á milli ára. Á fyrstu níu mánuðum ársins í ár kom 561 nýtt mál af þeim toga til kasta héraðsdómstóla. Á sambærilegu tímabili árið 2009 voru slík mál 75 en það er einnig margfalt meira en árið áður. Í frumvarpinu um fjölgun dómara kemur fram að fimm hundruð málum frá þessu ári sé ólokið. Er talið að mál af þessum toga komi fyrir héraðsdóm af fullum þunga á árinu 2011 og meðferð þeirra standi yfir fram eftir árinu 2012. Á sama tíma hefur öllum öðrum tegundum mála fækkað hjá héraðsdómstólum á milli ára.

Auk gjaldþrotaskiptamála og mála frá sérstökum saksóknara bætast við réttarhöldin yfir Geir H. Haarde, fyrrv. forsætisráðherra, fyrir landsdómi en fimm hæstaréttardómarar eiga sæti í landsdómi sem mun væntanlega koma saman á næsta ári.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

Í gær, 18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
Í gær, 18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
Í gær, 16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
Í gær, 17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

Í gær, 17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
Í gær, 15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Vilt Þu Aukatekjur
1 ár hysing + .com url + website builder = 25000 isk http://www.extrapaid.com/...
GLÆSILEG KENNSLUBIFREIÐ
Glæsileg kennslubifreið Subaru XV 4WD - árg. 2012. Þ...
Til sölu vespa
Til sölu mjög vel með farin Znen 50 QT 11C tvígengis vespa. Ekin aðeins 3.200 ...
Mitsubishi Pajero árg. 1992 til sölu.
Til sölu góður Mitsubishi Pajero árg. 1992. Bensín. Ekinn 270.000. Lítur vel út...
 
Hekla atvinna
Sérfræðistörf
HEKLA óskar eftir bifvélavirkjum til sta...
Auglýsing byggðakvóti

Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvó...
Deiliskipulagstillaga á grundartanga

Deiliskipulagstillaga á Grundartang...
15210 hjólbarðar
Tilboð - útboð
Útboð 15210 Hjól...