Innflytjendum fækkar á milli ára
mbl.is/Jón H. Sigmundsson
Hinn 1. janúar 2010 var 26.171 innflytjandi á Íslandi eða 8,2% mannfjöldans. Það er fækkun frá árinu 2009, þegar innflytjendur voru 9,0% landsmanna og 28.644 alls. Nokkuð hefur fjölgað í annarri kynslóð innflytjenda á milli áranna 2009 og 2010 eða úr 1.898 í 2.254.
Samanlagt
var fyrsta og önnur kynslóð innflytjenda 8,9% af mannfjöldanum 1.
janúar 2010, en var 9,6% árið 2009. Einstaklingum með erlendan bakgrunn,
öðrum en innflytjendum, fjölgaði lítillega frá 2009 til ársins 2010, úr
5,8% í 6% mannfjöldans, segir í frétt á vef Hagstofu Íslands.
„Innflytjandi er einstaklingur sem er
fæddur erlendis og af foreldrum sem eru líka fæddir erlendis, sem og
báðir afar og ömmur. Önnur kynslóð innflytjenda eru einstaklingar sem
eru fæddir á Íslandi af foreldrum sem eru báðir innflytjendur. Fólk með
erlendan bakgrunn eru þeir sem eru fæddir erlendis af íslensku foreldri
eða fæddir á Íslandi og annað foreldrið útlent," segir á vef Hagstofunnar.
Pólverjar fjölmennastir innflytjenda
Eins og síðustu ár voru Pólverjar langfjölmennasti hópur innflytjenda hér á landi árið 2010. Alls eru 10.058 einstaklingar upprunnir frá Póllandi eða 38,4% allra innflytjenda. Pólskir karlar voru 43,5% allra karlkyns innflytjenda 1. janúar 2010, eða 5.719 af 13.162. Pólskar konur voru 33,4% kvenkyns innflytjenda. Næstfjölmennasti hópur innflytjenda fæddist í Litháen, 5,5% en 5,0% innflytjenda fæddust á Filippseyjum.
Svipað hlutfall karla og kvenna
Kynjahlutfall,
reiknað sem fjöldi karla á hverjar 1.000 konur, hefur sveiflast mikið á
síðustu árum meðal innflytjenda. Árið 1996 voru konur í miklum
meirihluta. Þá voru 607 karlar á hverjar 1.000 konur meðal innflytjenda.
Frá og með 2006 snerist kynjahlutfallið við og náði hæst 1.353 körlum á
hverjar 1.000 konur árið 2007. Þann 1. janúar 2010 var kynjahlutfallið
orðið nánast jafnt, eða 1.012 karlar á hverjar 1.000 konur og var orðið
nánast hið sama og hjá hópnum með engan erlendan bakgrunn, 1.013 karlar á
hverjar 1.000 konur.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 15. mars 2011, Innlent Innflytjendur 8,1% af landsmönnum
- Miðvikudagur, 2. desember 2009, Innlent Innflytjendur 9% Íslendinga
- Þriðjudagur, 29. mars 2011, Innlent 13,3% eiga erlent foreldri
- Þriðjudagur, 29. mars 2011, Innlent 4907 börn fæddust árið 2010
- Mánudagur, 28. nóvember 2011, Innlent Færri innflytjendur í framhaldsnám
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































