„Var eins og að sigla á klett“

Bjarni Sigurðsson, útgerðarmaður í N-Noregi. stækka

Bjarni Sigurðsson, útgerðarmaður í N-Noregi. mbl.is/eskoy.no

„Veðrið var ekki svo slæmt, kaldaskítur að sunnan en var að bæta í vindinn. Þeir lentu í rosalega stórri öldu og þetta var eins og að sigla á klett, alveg þverhnípt. Það dugði ekki að slá af þegar skipstjórinn sá ölduna koma," segir Bjarni Sigurðsson, eigandi bátsins Sögu sem fékk brotsjó á sig undan ströndum N-Noregs í gær. Þrír Íslendingar voru um borð og björguðust þeir allir um borð í þyrlu.

Myndskeið af björguninni

Illa tókst að koma togi í bátinn í gær og urðu togbátar frá að hverfa. Var stór dráttarbátur fenginn til leitar, auk þess sem annar bátur í eigu sömu útgerðar, Eskoy AS, aðstoðaði við leitina. Að sögn Bjarna fannst Saga í morgunsárið og er verið að draga bátinn til hafnar í Honningsvog, rétt hjá Nordkap í N-Noregi. Ekki er vitað nákvæmlega hvað skemmdir eru miklar, annað en að allur búnaður í stýrishúsi er ónýtur og innréttingar í lúkar. Vélarrúmið er hins vegar þurrt, að sögn Bjarna, og allt útlit fyrir að aflinn um borð, 10 tonn, sé í lagi.

„Við munum landa fiskinum um leið og báturinn kemur til hafnar í kvöld," segir Bjarni en Saga komst nýverið í fréttirnar í N-Noregi fyrir aflamet í nóvembermánuði, þegar um 100 tonn náðust á línuveiðum þann mánuðinn. Um er að ræða plastbát smíðaðan árið 2007 af Trefjum í Hafnarfirði.

Skipverjarnir eru heilir á húfi eftir volkið, allt ungir en vanir sjómenn. Grindvíkingurinn Hrafn Sigvaldason er skipstjóri og með honum um borð voru Almar Ásgeirsson og Guðmundur Kr. Albertsson. Hrafn var við stýrið er aldan reið yfir en hinir sátu að snæðingi þar sem spaghettí var á boðstólum.

Gekk illa að bjarga bátnum

Bjarni segist hafa fengið fregnir af því um hálfníuleytið í gærmorgun að neyðarkall hefði borist frá bátnum. Hann var þá búinn að vera að veiðum frá því á laugardagskvöld og var á heimleið.

„Báturinn fannst fljótlega og þá voru þeir beðnir um að yfirgefa hann og bíða eftir aðstoð frá þyrlu," segir Bjarni.

Björgunarbátur var sendur af stað til að ná Sögu á flot. Þá var veður orðið vont og ekki tókst að koma manni um borð. Illa gekk að koma dráttartaug um borð og segir Bjarni að hún hafi slitnað tvisvar áður en að menn hafi gefist upp.

Stór dráttarbátur, sem yfirleitt er kallaður til aðstoðar við stærri skip, var þá sendur á vettvang og fannst Saga ekki í fyrstu. Stóð leit yfir að bátnum fram á nótt en undir morgun fannst hann, marandi í hálfu kafi.

„Við höfum aldrei lent í svona óhappi áður en Saga strandaði þó í fyrra á heimstími. Báturinn flaut þá af strandstað og tók aðeins viku að gera við hann. Var vel sloppið þá og við gerum okkur vonir um það núna að Saga verði komin á sjó eftir nokkrar vikur," segir Bjarni og á von á aðstoð frá Trefjum í Hafnarfirði við verkið.

Bjarni hefur verið búsettur í Noregi síðan 1980. Byrjaði með útgerð árið 2003 og stofnaði fyrirtækið Eskoy árið 2007. Þá var Saga smíðuð en fyrir er Bjarni með annan fiskibát.

Trefjar í Hafnarfirði smíðuðu Sögu árið 2007.

Trefjar í Hafnarfirði smíðuðu Sögu árið 2007. mbl.is/eskoy.no

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

Í gær, 18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
Í gær, 18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
Í gær, 16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
Í gær, 17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

Í gær, 17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
Í gær, 15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
RENAULT MEGANE SPORT TOURER
Renault Megane Sport Tourer Nýskr. 3/2004, ekinn 122 þ. km, bens...
Subaru Forester lækkað verð 290þús.stgr.
Sjálfsk. 4x4 í fínu standi. Ek.211 þús.km. Verð 420.000,- S. 896-0853....
Frábærar snyrtivörur á góðu verði.
Babaria er fjölbreytt vörulína sem hentar þörfum allra í fjölskyldunni. Þetta er...
Chesterfield sófasett til sölu!
Vel með farið 10 ára gamalt Chesterfield sófasett 3+1+1 til sölu. Uppl í síma 86...
 
Sýslumaðurinn á selfossi - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Kennarasöður
Grunn-/framhaldsskóla
Kennarastöður Grunnskóli...
Aðalfundur alliance

Aðalfundur 2012 Aðalfundur Alliance...
Grunn og leikskólakennarar
Grunn-/framhaldsskóla
Grunn- og leikskólakennarar ...