Býsna góð niðurstaða

Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, er ánægður með niðurstöðu …
Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, er ánægður með niðurstöðu samninga. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Mér finnst þetta býsna góð niðurstaða, miðað við þá kynningu sem ég hef fengið. Samninganefndin hefur náð vel utan um flesta þá þætti sem okkur voru þyrnir í augum og lagt góðan grunn að samkomulagi,“ segir Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráðherra, um Icesave-samningana.

Hann telur að ríkissjóður ráði vel við þær greiðslur sem á hann falla, sérstaklega í ljósi þeirrar óvissu sem eytt sé með samningnum.
Árni Páll studdi fyrri Icesave-samninginn. „Þegar ég studdi þann samning var það vegna þess að ég taldi að ekki yrði lengra komist, miðað við þær forsendur sem þá voru uppi, og mikilvægt að ljúka málinu. Margt hefur breyst síðan og sumt lagst með okkur. Niðurstaða nýrra samninga er mun betri og er því ennþá ríkari ástæða til að ljúka málinu,“ segir Árni Páll og leggur áherslu á að það verði gert með sem víðtækastri samstöðu.


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert