Verið að deila sársaukanum

Með nýjum Icesave-samningi er verið að skipta sársaukanum á milli aðila sem eru allir ábyrgir að einhverju leyti. Það sé grundvallarmunurinn á milli stöðu Íslendinga annars vegar og Íra og Grikkja hins vegar sem þurfi að greiða töluvert hærri vexti á sínum lánum. Þetta segir Lee Buchheit, formaður samninganefndar Íslands.

„Sjáið hvað er að gerast í Evrópu. Sjáið lánin til Grikklands á 5% vöxtum. Ég held að Írar hafi samþykkt að greiða 5,8% vexti á láni til mjög skamms tíma, á þremur til sjö árum. Þetta hérna er lán sem gæti náð til 37 ára á þeim vöxtum sem við erum að tala um. Hér er verið að skipta sársaukanum á milli aðila að mínu mati. Þetta er sanngjarn samningur,“ sagði Buchheit á blaðamannafundi fyrr í kvöld þar sem samkomulagið var kynnt.

„Aðstæðurnar voru afar óheppilegar af allra hálfu. Kannski ber Ísland mestu ábyrgðina fyrir að mistakast að hafa eftirlit með þessum stofnunum en ég held ekki að nokkur geti litið á þetta og sagt ekki sé um einhvers konar sameiginlega ábyrgð að ræða. Það er þetta sem aðskilur þetta mál frá þeim lánum sem verið er að veita öðrum löndum á evrusvæðinu.“

Því hafi samninganefndin ekki litið á samningana sem lán á milli tveggja ríkisstjórna. „Munið að þeir peningar sem Írar fá lánaða renna til Írlands. Ekki einn eyrir af þessum peningum rennur til Íslands heldur til að greiða innistæðueigendum í þessum tveimur löndum,“ sagði hann.

Lee Bucheit, formaður íslensku samninganefndarinnar.
Lee Bucheit, formaður íslensku samninganefndarinnar. mbl.is/Kristinn
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert