53% segja spillingu hafa aukist
Helmingur Íslendinga, eða 53%, telja spillingu hafa aukist á Íslandi, að því er kemur fram í alþjóðlegri rannsókn Global Corruptin Barometer 2010. Þá kemur fram mjög lítið traust á stjórnmálaflokkum hér á landi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Capacent, sem sá um framkvæmd rannsóknarinnar á Íslandi.
Segir að spilling hafi aukist verulega í heiminum á undanförnum þremur árum að mati 60% þeirra sem tóku þátt rannsókninni.
Þá segir að einn af hverjum fjórum á heimsvísu segist hafa greitt mútur á síðastliðnu ári.
Þegar íslensku niðurstöðurnar eru skoðaðar kemur í ljós að 53% Íslendinga telja spillingu hafa aukist, 32% telja hana hafa staðið í stað og að mati 15% hefur dregið úr spillingu.
Þátttakendur voru m.a. beðnir um að meta hversu mikil spilling viðgengist innan mismunandi þjóðfélagstofnana þar sem einkunnin 1 merkti að viðkomandi stofnun væri óspillt og einkunnin 5 að hún væri gjörspillt.
Stjórnmálaflokkar á Íslandi fengu einkunnina 4,3, Alþingi 3,7, lögreglan 2,2, viðskiptalífið, 4,0, fjölmiðlar 3,5, embættismenn 3,5, dómskerfið 2,7, almenn samtök 2,6, trúfélög 3,2 og menntakerfið fékk einkunnina 2,4.
Rannsókn Global Corruption Barometer nær til 86 ríkja um allan heim og tóku 91.500 þátt í rannsókninni. Þetta er eina hnattræna rannsóknin sem gerð er á spillingu í heiminum.
Niðurstöðurnar voru neikvæðastar á Vesturlöndum. Í Vestur-Evrópu segjast 73% telja að spilling hafi aukist og 67% í Norður-Ameríku.
Ein af meginniðurstöðunum á heimsvísu er að fáir treysta stjórnvöldum og stjórnmálamönnum. Átta af hverjum tíu segja að stjórnmálaflokkar séu spilltir eða gjörspilltir og um helmingur segir tilraunir stjórnvalda til að berjast gegn spillingu ekki skila árangri.
Nánari umfjöllun má sjá á vef Transparency International.
Bloggað um fréttina
-
Guðjón Sigþór Jensson Er spilling vaxandi á Íslandi? -
Guðmundur Júlíusson 47% landsmann telja að spilling hafi ekki aukist hér á ... -
Valli Djöfull Misskilningur.. Hefur ekki aukist.. -
Guðrún María Óskarsdóttir. Frelsi er ekkert frelsi nema þess finnist mörk, .... -
Ásgrímur Hartmannsson Aukist? Nei. -
Axel Þór Kolbeinsson Samanburðargögn hér -
Gísli Foster Hjartarson hahaha hafi aukist!!!
Innlent »
Sunnudagur, 27.5.2012
-
Peningar ekki rót alls ills
- Fyrst til að verða meistari í bílasmíði
- Átta umferðarslys á tíu dögum í og við Búðardal
- Þriðja árið í röð í 19. - 20. sæti
- Flestir hlynntir staðgöngumæðrun
- Catalina er í fullu fjöri
- Skjaldborg í skjóli fjalla
- Fisvél brotlenti við Klaustur
- Náttúru, sögu og nytjum gerð skil
- Þóra opnar skrifstofu
- Veðrið leikur við landsmenn
- Lettneska konan enn ófundin
- Við akstur undir áhrifum kannabis
- Gleymdist að slökkva á eldavélinni
- Fjölmennasti hópurinn frá upphafi
- Voru frelsinu fegnar
- Margir sóla sig í sundi í dag
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 4. janúar 2012, Innlent Áburður verði í samræmi við íslenskar kröfur
- Þriðjudagur, 14. desember 2010, Innlent Verslunarmannafélag Reykjavíkur hyggst berjast gegn spillingu
- Miðvikudagur, 15. júní 2011, Innlent Verðlaunuð fyrir framúrskarandi árangur
- Mánudagur, 1. febrúar 2010, Innlent Ísland enn á athugunarlista
- Laugardagur, 5. júní 2010, Innlent Gagnrýndi stjórnvöld harðlega
-
Annan segir morðin hryllileg
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
































