152 milljarða skattahækkun
Að teknu tilliti til þeirra breytinga sem gerðar hafa verið á skattkerfinu frá miðju árinu 2009 og boðaðra breytinga á næsta ári má ætla að heildaráhrif allra tekjuaðgerðanna í fjárlögum ársins 2010 og frumvarpi ársins 2011 nemi um 152 milljörðum kr. Þetta segir Kristján Þór Júlísson, þingmaður Sjálfstæðisflokks.
Kristján sagðist efast um að það sé rétt sem haldið hefur verið fram að þessi fjárlög sé erfiðasti hjallinn í þeirri vinnu að ná jöfnuði í fjárhag ríkissjóðs. Stjórnvöld hafa sett sér það markmið að ríkissjóður verði rekinn með hagnaði árið 2013. Kristján segir að enn eigi eftir að jafna 37 milljarða halla á fjárlögum. Þar fyrir utan séu útgjöld vegna Icesave. Þá liggi fyrir að spár um hagvöxt séu á niðurleið og fyrir liggi að tekjur af sköttum á þessu ári séu ekki eins miklar og reiknað hefði verið með.
Kristján sagði að sjálfstæðismenn legðu mikla áherslu á að ríkissjóður yrði sjálfbær. Það væri meginforsenda þess að hagkerfinu yrði aftur stýrt á rétta braut. Útgjöldum ríkissjóðs hefði verið leyft að vaxa nær hömlulaust undanfarin ár án þess að grundvöllur væri fyrir því til lengri tíma.
„Óhjákvæmilegur niðurskurður opinberra útgjalda er ekki auðveldur í framkvæmd, svo sem dæmi undanfarinna vikna sanna. Ástæðurnar má fyrst og fremst skýra með illa grunduðum tillögum og algerum skorti á samráði við hagsmunaaðila. Þá hafa stjórnvöld með nýjum álögum gengið langt í að þurrausa tekjumöguleika ríkissjóðs. Þess sér stað í samdrætti mikilvægra skattstofna, langt umfram áætlanir, og þeim fjármagns- og fyrirtækjaflótta sem vart hefur orðið við undanfarið. Verði ekki snúið af þessari braut er hætt við að ríkisstjórnin lokist inni í vítahring skattahækkana og niðurskurðar til að bæta upp dræmar vaxtarhorfur hagkerfisins.“
Bloggað um fréttina
-
Haraldur Haraldsson 152 milljarða skattahækkun/það á lága jafnt sem háa!!er þetta sanngjarnt ...
Innlent »
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 14. maí 2010, Innlent Telja skattahækkanir vanmetnar
- Þriðjudagur, 28. september 2010, Innlent 30 milljarða niðurskurður í fjárlögum 2011
- Miðvikudagur, 12. október 2011, Innlent Fjárlagahallinn 41,3 milljarðar
- Þriðjudagur, 15. desember 2009, Innlent Steingrímur: Vel sloppið
- Föstudagur, 15. október 2010, Innlent Fjárlagahalli minni en talið var
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































