ESA tók þátt í að kúga Ísland
ESA, Eftirlitsstofnun EFTA, mun hætta að skamma Íslendinga fyrir framferði þeirra í Icesave-deilunni samþykki þeir nýja Icesave-samninginn, að mati Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Framsóknarflokks, í fyrra andsvari við ræðu Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra um Icesave-málið.
Sigmundur Davíð spurði Steingrím um framgöngu um ESA í Icesave-deilunni.
Steingrímur kvaðst þá fagna þeirri niðurstöðu ESA að neyðarlögin sem Alþingi samþykkti eftir hrunið væru réttmæt.
Sigmundur Davíð ítrekaði að rétt væri að gera athugasemdir við að ESA skyldi hafa tekið þátt í að kúga Íslendinga í deilunni. Það að ESA skuli gefa til kynna að Íslendingum verði veitt „sakaruppgjöf“ gegn því að samþykkja nýja samninginn væri til vitnis um óeðlilega framgöngu ESA. Hann vitnaði til þess mats norska lagaprófessorsins Peter Ørebech að form samningaviðræðnanna í Icesave-deilunni væri óeðlilegt. Ekki ætti að ræða slíkt mál í bakherbergjum, í ljósi þess að málið varðaði regluverk Evrópusambandsins.
Svaraði Steingrímur því þá til að enginn vafi léki á lagalegum rétti ríkisstjórnarinnar til að semja um málið.
Siv Friðleifsdóttir situr í stól þingforseta en hún hefur ítrekað beðið þingmenn um að láta af fram í köllum úr sal.
Höskuldur Þór Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokks, vísaði því stöðumati Steingríms á bug að ytri þættir hefðu breyst í Icesave-deilunni, sem yrði að taka til hliðsjónar við sanngjarnt mat á málsmeðferðinni. Höskuldur Þór taldi þvert á móti að staðan hefði breyst vegna baráttu óháðra samtaka og stjórnarandstöðunnar.
Innlent »
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 18. september 2010, Innlent Óvarlegt að tala svona
- Miðvikudagur, 6. október 2010, Innlent Icesave ekki vísað til EFTA-dómstólsins
- Þriðjudagur, 7. desember 2010, Innlent Ólíklegt að niðurstaða náist í dag
- Mánudagur, 11. október 2010, Innlent Ekki bólar á bréfinu til ESA
- Þriðjudagur, 12. apríl 2011, Innlent Þurfum ekki að flýta dómsmáli
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































