Fjárlagafrumvarpið samþykkt
Fjárlög ársins 2011 voru samþykkt með 32 atkvæðum. 31 þingmaður sat hjá, m.a. þrír þingmenn VG. Frumvarpið var samþykkt með 37,3 milljarða halla.
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra sagðist gera sér vonir um að með þessum fjárlögum sköpuðust forsendur fyrir nýtt upphaf. Þó að breytingar hefðu verið gerðar á frumvarpinu hefði tekist að varðveita markmið um afgang á frumjöfnuði, en hann yrði um 1% af landsframleiðslu.
„Ég á mér þá von að þetta frumvarp, þó að það sé erfið birtingarmynd þeirra óskapa sem á Ísland dundu 2008, marki um leið nýtt upphaf og að það boði að árið 2011 geti orðið okkur Íslendingum á margan hátt farsælt. Ár sem mikill viðsnúningur verður og við hefjum sókn á nýjan leik eftir varnarbaráttu sem við höfum háð tvö undanfarin ár.“
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði að vegna þessa frumvarps yrði sóknin, sem fjármálaráðherra talaði um, veikari en að var stefnt og Íslendingar þyrftu á að halda.
„Það er sagt að stjórnmál séu list hins mögulega. Manni kemur þetta í huga þegar stjórnmálamaðurinn og listamaðurinn sem gekk til liðs við VG verður þeirra bjargvættur [Þráinn Bertelsson]. Án liðsaukans sem Vinstri grænir hafa fengið, þar sem að þeir hafa misst 20% þingflokksins fyrir borð við umræðu þessa máls, hefðu þeir ekki haft meirihluta í þinginu. Það segir meira en mörg orð um stöðu ríkisstjórnarinnar og stöðu þess fjárlagafrumvarps sem hér er verið að greiða atkvæði um,“ sagði Bjarni.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, sagði að það væri ekki bara vinnubrögðin sem væru slæm sem lægju að baki fjárlagavinnunni. Frumvarpið væri slæmt. Tekjur væru ofáætlaðar og stórum útgjaldalið, Icesave-samningnum, væri hreinlega sleppt, en greiða þyrfti 26 milljarða vegna þeirra á næsta ári. „Við skulum vona að þetta verði eina Grikklandsárið hjá ríkisstjórninni í fjárlagagerðinni en ég er dálítið hræddur um að svo verði ekki,“ sagði Sigmundur Davíð.
Bloggað um fréttina
-
Gísli Birgir Ómarsson Þið eruð nú meiri gungurnar.... -
Sigurður Jónsson Tríó Lilju hlýtur að yfirgefa Vinstri stjórnina. -
Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir Nýtt upphaf fátæktar og ánauðar... -
Magnús Sigurðsson Búnir að fá nóg. -
Axel Jóhann Axelsson Einsdæmi í þingsögunni -
Gunnar Heiðarsson 32 vanhæfir þingmenn !! -
Ómar Ragnarsson Tæpur þingmeirihluti. -
Jón Baldur L'Orange ,,Hjartahreinir hugsjónamenn" -
Axel Þór Kolbeinsson Heiglar, rolur og aumingjar
Innlent »
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 22. desember 2009, Innlent Fjárlög með 99 milljarða halla
- Miðvikudagur, 15. desember 2010, Innlent Útgjöld hækka um 9 milljarða
- Þriðjudagur, 6. desember 2011, Innlent Stefnir í fjárlög með 20,7 milljarða halla
- Þriðjudagur, 22. desember 2009, Innlent Vasapeningar ellilífeyrisþega skertir
- Laugardagur, 1. október 2011, Innlent 17,7 milljarða halli árið 2012
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































