Mikill verðmunur á bókum

stækka

mbl.is/Árni Sæberg

Allt að 160% verðmunur var á nýjum jólabókum þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð í 12 verslunum víðsvegar um landið sl. þriðjudag. Skoðað var verð á 43 algengum bókatitlum. Algengast var að fjórðungs til helmings verðmunur væri á milli verslana.

Lítill munur milli Bónus og Krónunnar

Bónus var oftast með lægsta verðið á 17 titlum, en einnar krónu verðmunur var á Bónus og Krónunni á 9 af 10 bókatitlum sem til voru í báðum verslunum.  Mál og menning Laugavegi og Penninn Eymundsson Kringlunni voru oftast með hæsta verðið í 12 tilvikum, en Bóksala stúdenta var næst oftast með hæsta verðið eða í 10 tilvikum.

Allir 43 titlarnir sem skoðaðir voru í könnuninni voru fáanlegir í Mál og menningu, Pennanum-Eymundsson og Griffli, í Hagkaupum voru 42 titlar fáanlegir, í A4 voru 41 titill fáanlegur og Bóksala stúdenta var með 40 titla. Fæstir titlar í könnuninni voru fáanlegir í Krónunni Reyðafirði og Office 1 á Egilsstöðum.

Mestur verðmunur í könnuninni var á barnabókinni „Skúli skelfir fer í frí“ sem var á lægsta verðinu hjá Nettó á 1.031 kr. en dýrust hjá Hagkaupum á 2.680 kr. sem er 160% verðmunur eða 1.649 kr.

Athugasemd frá Hagkaup sett inn kl: 10:41 

Bókin Skúli skelfir fer í frí hefur aldrei verið seld á 2.680 krónur í verslunum Hagkaups samkvæmt upplýsingum frá framkvæmdastjóra Hagkaups. Heldur hefur bókin kostað, frá því hún kom í sölu, 2.290 krónur sem er sama verð og hjá flestum bóksölum.

Minnsti verðmunurinn í könnuninni var á „Furðuströndum“ eftir Arnald Indriðason sem var á lægsta verðinu hjá Nettó á 3.471 kr. en dýrust á 3.983 kr. í Bóksölu stúdenta sem er 15% verðmunur eða 512 kr.

Könnunin var gerð í eftirtöldum verslunum : Máli og menningu Laugavegi, Pennanum-Eymundsson Kringlunni, Bóksölu stúdenta Sæmundargötu, Griffli Skeifunni, Office 1 Egilsstöðum, Nettó Mjódd, Hagkaup Smáralind, Bónus Ísafirði, Krónan Reyðafirði, A4 Smáratorgi, Iðu Lækjargötu og Samkaupum Úrval Egilsstöðum.


Sjá nánar á vef ASÍ

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Eskifjörður. Hólmatindur er í baksýn.

Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín

08:26 Lokun Landsbankans á útibúi bankans á Eskifirði er harðlega mótmælt í ályktun stjórnar Íbúasamtaka Eskifjarðar sem samþykkt. Er bent á að útibú Landsbankans hafi verið eina bankastofnunin á Eskifirði og að fyrir vikið hafi Eskfirðingar frekar beint viðskiptum sínum til hans en annarra banka. Meira »

Vissu ekki hver hefði ekið

08:13 Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um bifreið utan vegar á Álftanesi um klukkan hálf tvö í nótt. Þegar á staðinn var komið voru þar tveir ölvaðir karlmenn sem reyndust ekki alveg með það á hreinu hvor þeirra hefði verið undir stýri þegar ökuferðin endaði úti í móa. Meira »

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
Í gær, 18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

Í gær, 18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
Í gær, 17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

Í gær, 17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Til sölu ljósakróna
Mjög vel með farin ljósakróna frá Home Art kr. 5000,- Upplýsingar í síma 6633-0...
Toyota Yaris DIESEL árgerð 2006
Toyota Yaris Diesel árgerð 07/2006. Ekinn 79.000 km. Sjálfskiptur. 5 dyra. Silf...
Honda Accord Sport Special Edition 11/07
Ek. 44 þ.km. 2,0L vél, sjálfsk., 17" álfelgur, sumar- og vetrard, hiti í sætum, ...
DÖMU MOKKASÍUR
Teg. 5011 Mjúkar og þægilegar dömu mokkasíur úr leðri, skinnfóðraðar. - Litur: S...
 
Auglýsing byggðakvóti

Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvó...
Útboð nr. 20091
Tilboð - útboð
Útboð nr. 20091 Glerskipti...
Bæjarlögmaður
Sérfræðistörf
Bæjarlögmaður Kópavogsbær auglýsir stö...
Skólastjóri hrafnatilsskóla
Sérfræðistörf
Mynd af auglýsingu ...