Tveggja ára fangelsi fyrir íkveikju
Hæstiréttur hefur staðfest dóm yfir karlmanni sem var dæmdur í tveggja ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að hafa orðið valdur að eldsvoða sem hafði í för með sér almannahættu. Maðurinn játaði sök.
Maðurinn var sakfelldur í héraði í byrjun árs fyrir að hafa hellt bensíni úr brúsa inn í og á bifreið sem stóð á bifreiðarstæði við Leifsgötu í Reykjavík. Hann kveikti í bensíninu og olli með því eldsvoða sem hafði í för með sér almannahættu.
Fram kemur í dómi Hæstaréttar að eldurinn hafi breiðst út með þeim afleiðingum að tvær bifreiðar brunnu og sú þriðja stórskemmdist. Þá komu sprungur komu í rúður á 1. og 2. hæð húss sem stóð við bílastæðið.
Í dómi Hæstaréttar segir að það hljóti að hafa verið manninum ljóst að íkveikjan myndi hafa í för með sér augljósa hættu á yfirgripsmikilli eyðingu á eignum annarra manna.
Fengnir voru matsmenn sem komust að þeirri niðurstöðu, að telja mætti öruggt að íkveikjan hafi leitt til almannahættu að því er varðaði umfangsmikla eyðingu á tveimur bílum og einnig á húseigninni og lausafjármunum í Leifsgötu 22 hefði eldurinn brunnið áfram og borist inn í húsið í kjallara og á 1. hæð. Hins vegar töldu matsmennirnir ekki, að íbúar í húsinu og næsta húsi hafi verið í hættu.
Með hliðsjón af alvarleika brotsins þótti ekki tilefni til að skilorðsbinda refsinguna. Maðurinn hefur áður verið níu sinnum sektaður fyrir umferðarlagabrot og þrisvar sinnum sviptur ökurétti. Eftir að hann kveikti í bílnum var hann sektaður fyrir skemmdarverk og í maí á síðasta ári var hann dæmdur í 45 daga fangelsi fyrir ölvunarakstur og réttindaleysi við akstur og sviptur ökurétti í 3 ár og 6 mánuði.
Innlent »
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 9. febrúar 2010, Innlent 2 ára fangelsi fyrir íkveikju
- Þriðjudagur, 8. desember 2009, Innlent Sakhæfir og skaðabótakrafa á forráðamenn
- Fimmtudagur, 20. janúar 2011, Innlent Gæsluvarðhald vegna íkveikju staðfest
- Fimmtudagur, 16. desember 2010, Innlent Dómur tvöfalt lengri í Hæstarétti
- Fimmtudagur, 10. nóvember 2011, Innlent Fangelsisdómur fyrir umferðarlagabrot
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































