Mislukkuð baðferð í Hafnarfirði

Úr myndasafni mbl
Úr myndasafni mbl Árni Sæberg

Fyrirhuguð baðferð Hafnfirðings endaði með ósköpum í dag.

Hann hugðist fara í bað, skrúfaði frá krönum og brá sér að því búnu af bæ.

Íbúð Hafnfirðingsins er staðsett á fyrstu hæð fjölbýlishúss og lak mikið vatn niður í kjallara hússins.

Að sögn slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu er ekki vitað hversu mikið tjón hlaust af.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert