Sakar forsætisráðherra um að leyna upplýsingum

Guðlaugur Þór Þórðarson.
Guðlaugur Þór Þórðarson.

Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, fullyrti í upphafi þingfundar á Alþingi í dag, að forsætisráðherra væri að leyna þingið upplýsingum.

Guðlaugur Þór hefur oft í vetur gagnrýnt ráðherra fyrir að vera spara á upplýsingar um ýmis mál sem hann hefur spurt um. Guðlaugur Þór sagði að hann og Óli Björn Kárason, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefðu í hálft ár reynt að fá upplýsingar um sérfræðikostnað hjá starfsmönnum félagsvísindasviðs Háskóla Íslands en það hefði mætt ýmiskonar töfum hjá forsætisráðherra.

„Þann 15. þessa mánaðar kom hins vegar svar, sem ég fullyrði að er rangt. Ég fullyrði það, að hæstvirtur forsætisráðherra sé að leyna þinginu upplýsingum. Eina leið okkar í stöðu sem þessari er að fá skýrslu frá Ríkisendurskoðun um málið," sagði Guðlaugur Þór. Fór hann fram á það að forsætisnefnd Alþingis hlutaðist til um að Ríkisendurskoðun gerði slíka úttekt.

Í svari forsætisráðherra, sem Guðlaugur Þór vísaði til, er tilgreindur kostnaður ráðuneyta við aðkeypta þjónustu, ráðgjöf og sérverkefni núverandi starfsmanna félagsvísindadeildar Háskóla Íslands.

Í bréfi, sem Guðlaugur Þór sendi forseta Alþingis, þar sem fram kom formleg beiðni um úttekt Ríkisendurskoðunar, segir hann að sem dæmi um röng og ófullnægjandi svör við fyrirspurninni megi tilgreina, að ekki sé upplýst hvað Stefán Ólafsson, prófessor, fékk greitt fyrir að vera  formaður nefndar, vinnu og skýrsluskrif hjá heilbrigðisráðuneyti árið 2009.

Þá sé ekki upplýst hvaða aðilar unnu fyrir Háskóla Íslands við mat á áhrifum á skattbreytingum, við útreikninga á ýmsum þjóðhagsstærðum í tengslum við samning Sameinuðu þjóðanna um losun gróðurhúsalofttegunda. 

Einnig sé ekki upplýst um kostnað við tímabundin störf Sigurbjargar Sigurgeirsdóttur hjá forsætisráðuneyti, heilbrigðisráðuneyti og utanríkisráðuneyti á árunum 2007-2008 og ekki sé upplýst um kostnað við vinnu Þórólfs Matthíassonar fyrir eftirlistnefnd um sértæka skuldaaðlögun.

Svar forsætisráðherra

Vísar ásökunum þingmanns á bug

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert